fbpx
Fimmtudagur 12.mars 2026
433Sport

Gefur lítið fyrir mikilvægi stórleiks dagsins – „Titilbaráttunni er lokið, trúið mér“

Aron Guðmundsson
Sunnudaginn 7. febrúar 2021 13:15

GettyImages

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Harry Redknapp, fyrrverandi knattspyrnustjóri liða á borð við Tottenham og Portsmouth, telur að úrslitin í leik Liverpool og Manchester City muni hafa lítið að segja í titilbaráttu deildarinnar.

„Fyrir mánuði síðan hélt ég að titilbaráttan í ensku úrvalsdeildinni myndi ráðast í síðustu umferðinni. Nú segi ég að við verðum heppin ef úrslitin verða ekki ráðin fyrir páska. Í mínum augum eru úrslitin nú þegar ráðin varðandi það hvaða lið verður Englandsmeistari,“ skrifaði Harry Redknapp í pistli sem birtist hjá The Sun.

Redknapp telur fullvíst að Manchester City verði enskur meistari. Hann segir engu máli skipta hvernig leikur liðsins gegn Liverpool fari í dag.

„Titilbaráttunni er lokið, trúið mér,“ skrifar Harry Redknapp.

Manchester City er í 1. sæti deildarinnar með 47 stig eftir 21 leik, fyrir leik dagsins. Manchester City hefur verið á miklu skriði í ensku úrvalsdeildinni og virðist ósigrandi um þessar mundir. Síðasta tap liðsins kom gegn Tottenham þann 21. nóvember 2020.

Liverpool er í 4. sæti með 40 stig eftir 22 leiki og tapaði fyrir Brighton á heimavelli í síðustu umferð. Það verður fróðlegt að sjá hvort Jurgen Klopp, knattspyrnustjóri Liverpool eigi ása upp í erminni til að koma Pep Guardiola og lærisveinum hans á óvart.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 11 klukkutímum

Hefur kostað United 23 milljarða en ekki skilað neinu

Hefur kostað United 23 milljarða en ekki skilað neinu
433Sport
Fyrir 12 klukkutímum

Lögregla algjörlega hneyksluð á stórveldunum

Lögregla algjörlega hneyksluð á stórveldunum
433Sport
Fyrir 15 klukkutímum

Það skemmtilegasta sem Rooney hefur upplifað frá því ferlinum lauk

Það skemmtilegasta sem Rooney hefur upplifað frá því ferlinum lauk
433Sport
Fyrir 15 klukkutímum

Nýtt ofurpar að fæðast – Athygli vekur hver hennar fyrrverandi er

Nýtt ofurpar að fæðast – Athygli vekur hver hennar fyrrverandi er
433Sport
Fyrir 19 klukkutímum

Lykilmaður óvænt á förum frá Akureyri – Segja að ágreiningur hafi komið upp

Lykilmaður óvænt á förum frá Akureyri – Segja að ágreiningur hafi komið upp
433Sport
Fyrir 19 klukkutímum

Tíu knattspyrnumönnum meinað að mæta til leiks í Bandaríkjunum

Tíu knattspyrnumönnum meinað að mæta til leiks í Bandaríkjunum
433Sport
Fyrir 22 klukkutímum

Vill til Spánar þrátt fyrir áhuga innan Englands

Vill til Spánar þrátt fyrir áhuga innan Englands
433Sport
Í gær

Dramatík í Newcastle – Ótrúlegur leikur í Madríd

Dramatík í Newcastle – Ótrúlegur leikur í Madríd