fbpx
Sunnudagur 14.júní 2026
433

Davíð liggur undir feldi – Ákvörðun væntanleg á morgun

Hörður Snævar Jónsson
Fimmtudaginn 21. janúar 2021 14:00

Davíð (t.v)

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Breiðablik og Valur eru bæði að reyna að sannfæra Davíð Örn Atlason, bakvörð Víkings um að ganga í raðir félagsins.

Frá því var greint í hlaðvarpsþætti Dr. Football í dag að Davíð muni skrifa undir hjá nýju félagi á morgun.

Davíð er sagður hafa kvatt liðsfélaga sína í Víkinni í gær en þar hefur hann átt frábær ár, Davíð hefur verið einn besti hægri bakvörður íslenska fótboltans síðustu ár.

Breiðablik hefur verið að skoða stöðu hægri bakvarðar í vetur en hjá Val er fyrir Birkir Már Sævarsson.

Davíð er 26 ára gamall en hann hefur spilað 150 leiki í meistaraflokki og skorað í þeim tíu mörk.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Í gær

Djarfur klæðaburður í stúkunni vekur gríðarlega athygli – Myndir

Djarfur klæðaburður í stúkunni vekur gríðarlega athygli – Myndir
433Sport
Í gær

Stjarnan staðfestir brottrekstur Jökuls

Stjarnan staðfestir brottrekstur Jökuls
433Sport
Fyrir 2 dögum

Partey neitað um inngöngu og verður ekki með í fyrsta leik

Partey neitað um inngöngu og verður ekki með í fyrsta leik
433Sport
Fyrir 2 dögum

Liverpool staðfestir að þrír úr starfsliði Slot hafi verið leystir frá störfum

Liverpool staðfestir að þrír úr starfsliði Slot hafi verið leystir frá störfum
433Sport
Fyrir 2 dögum

Klopp mjög óhress með gærkvöldið

Klopp mjög óhress með gærkvöldið
433Sport
Fyrir 2 dögum

Minningarsteinn afhjúpaður til heiðurs Sigursteini Gíslasyni í kvöld

Minningarsteinn afhjúpaður til heiðurs Sigursteini Gíslasyni í kvöld