fbpx
Þriðjudagur 09.desember 2025
433Sport

Allt gekk eins og í sögu þegar Van Dijk fór undir hnífinn

Hörður Snævar Jónsson
Föstudaginn 30. október 2020 14:00

Virgil van Dijk meiddist eftir tæklingu frá Pickford. Mynd/Getty

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Virgil van Dijk varnarmaður Liverpool fór í vel heppnaða aðgerð í Lundúnum á dögunum og er bataferlið farið af stað. Liverpool segir frá þessu á heimasíðu sinni.

Van Dijk sleit krossband fyrir tæpum tveimur vikum í leik gegn Everton og verður frá í fleiri mánuði vegna þess.

Aðgerðin gekk hins vegar vel. „Van Dijk er einbeittur á að hefja bataferlið með hjálp sjúkrateymis Liverpool,“ segir á vef félagsins.

Félagið segir engan tímaramma vera til staðar um hvenær Van Dijk verður leikfær aftur en flestir búast við því að það verði ekki fyrr en á næstu leiktíð.

Van Dijk hefur verið besti varnarmaður ensku úrvalsdeildarinnar síðustu ár og er blóðtakan því gífurleg fyrir Liverpool.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 6 klukkutímum

Liverpool og Barcelona fá skilaboð um miðjumann sem þau geta keypt í janúar

Liverpool og Barcelona fá skilaboð um miðjumann sem þau geta keypt í janúar
433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Liverpool sagt klárt með arftaka fyrir Salah

Liverpool sagt klárt með arftaka fyrir Salah
433Sport
Fyrir 21 klukkutímum

Nokkur íslensk landslið fá að vita hverjir andstæðingarnir verða í vikunni

Nokkur íslensk landslið fá að vita hverjir andstæðingarnir verða í vikunni
433Sport
Fyrir 22 klukkutímum

Staðfest að Salah var skilinn eftir heima – Óvíst hvað gerist um helgina

Staðfest að Salah var skilinn eftir heima – Óvíst hvað gerist um helgina