Það er svo sannarlega eitthvað að klikka hjá liði Manchester United sem spilar í ensku úrvalsdeildinni.
United hefur verið í mikilli lægð undanfarið og mætti Everton á Goodison Park í dag.
Þeir rauðu áttu aldrei séns í Liverpool-borg en Gylfi Þór Sigurðsson komst á blað í öruggum 4-0 sigri Everton.
Jón Þór Hauksson, landsliðsþjálfari íslenska kvennaliðsins, tjáði sig um lið United á Twitter-síðu sinni.
Þar talar Jón um að hafsentar liðsins séu handónýtir og að réttu skrefin þurfi að vera tekin á leikmannamarkaðnum í sumar.
Ole Gunnar Solskjær mun fá pening til að eyða í sumar en líklegt þykir að hann losi sig við þónokkra spilara.
Mönnum er tíðrætt um De Gea, Pogba, Sanchez o.fl. En þetta er 10. leikurinn í röð sem Utd fær á sig mark! Handónýtir hafsentar og ýmist með gamla kantmenn eða hafsenta að spila bakvörð. Það þarf fyrst og fremst að koma reglu á þetta í kaupum sumarsins.
— Jón Þór Hauksson (@jonthor78) 21 April 2019