Athletic Bilbao 1-0 Barcelona
1-0 Aritz Aduriz(89′)
Barcelona byrjar tímabilið illa en liðið mætti Athletic Bilbao í fyrsta deildarleiknum á Spáni.
Það var ekki boðið upp á neina flugeldasýningu en eitt mark var skorað á San Mames.
Það var Aritz Aduriz sem gerði eina mark leiksins fyrir Athletic á lokamínútum leiksins.
Barcelona varð fyrir áfalli í fyrri hálfleik en Luis Suarez þurfti þá að fara af velli vegna meiðsla.
Barcelona var einnig án Lionel Messi í kvöld en hann er að glíma við smávægileg meiðsli.