Xherdan Shaqiri, leikmaður Liverpool, verður frá í einhvern tíma en Jurgen Klopp hefur staðfest það.
Shaqiri meiddist þann 9. júní síðastliðinn er England spilaði við Sviss í Þjóðadeildinni.
Þessi 27 ára gamli leikmaður sneri aftur til Liverpool á mánudaginn en er enn að glíma við meiðsli í kálfa.
,,Shaq er ennþá meiddur eftir að hafa spilað með landsliðinu, það er dágóður tími í að hann verði klár,“ sagði Klopp.
Liverpool spilar sinn fyrsta æfingaleik á fimmtudag er liðið mætir Tranmere Rovers.