Evrópumeistarar Liverpool hafa samþykkt að kaupa miðjumanninn Harvey Elliott samkvæmt ensku miðlum.
Elliott er leikmaður sem vakti athygli á síðustu leiktíð en hann varð þá sá yngsti í sögunni til að spila í ensku úrvalsldeildinni.
Elliott var aðeins ný orðinn 16 ára gamall er hann kom við sögu í leik hjá Fulham í efstu deild.
Barcelona, Real Madrid og Paris Saint-Germain hafa öll sýnt þessum efnilega leikmanni áhuga.
Samkvæmt nýjustu fregnum þá hefur Liverpool náð samkomulagi við Fulham um kaup á leikmanninum.
Elliott hefur ekki áhuga á að halda áfram hjá Fulham samkvæm the Telegraph og mun þess í stað ganga í raðir Liverpool.