fbpx
Laugardagur 23.ágúst 2025
433Sport

Helgi Seljan skildi ekki afsökunarbeiðni Harðar til Óla Jó: „Svo þetta? Hvað gerðist?“

Hörður Snævar Jónsson
Mánudaginn 3. júní 2019 11:35

Helgi Seljan

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ólafur Jóhannesson, þjálfari Vals, fékk afsökunarbeiðni í Pepsi Max-mörkum gær. Hörður Magnússon sá um að biðja Ólaf afsökunar vegna viðtals sem var birt í þættinum eftir fjórðu umferð.

Áður en viðtalið sjálft hófst þá sagði Ólafur við fréttamann Stöð 2 að það mætti ekki spyrja út í mál framherjans Gary Martin. Framtíð Gary var í mikilli óvissu á þessum tíma en hann var svo leystur undan samningi stuttu síðar.

Í Pepsi Max-mörkunum var birt klippa af Ólafi þar sem hann bannaði blaðamanni að spyrja út í mál enska framherjans. ,,Við birtum það án þess að ígrunda það nægilega vel,“ sagði Hörður í þætti gærkvöldsins.

Helgi Seljan Jóhannsson, hjá RÚV gagnrýndi það að Hörður og félagar væru að biðjast afsökunar. „Af hverju eru #pepsimaxmörkin að biðja ÓJ afsökunar á því að hafa birt upptöku sem er tekinn á “viðtalssvæði” í Árbænum? Fyrir tveimur vikum var eðlilega sagt að ÓJ hefði ekkert dagskrárvald í þættinum, en svo þetta? Hvað gerðist?,“ sagði Helgi Seljan um málið á Twitter í gærkvöldi.

Hörður Magnússon, sem hefur stýrt skútunni í mörg ár útskýrði málið á Twitter í dag. „Einhverjir hissa á afsökunarbeiðni til Óla Jó. Það var ekki sanngjarnt gagnvart honum að birta það. Það breytir samt því ekki að hann getur ekki stjórnað um hvað er spurt. Svo mörg eru þau orð. #pepsimaxmörkin.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 16 klukkutímum

Dias framlengir samning sinn á Ethiad

Dias framlengir samning sinn á Ethiad
433Sport
Fyrir 17 klukkutímum

Formaður og stjóri Palace í hár saman eftir að Eze var seldur – Guehi gæti farið á næstu dögum

Formaður og stjóri Palace í hár saman eftir að Eze var seldur – Guehi gæti farið á næstu dögum
433Sport
Fyrir 19 klukkutímum

United stelur lækni af Crystal Palace

United stelur lækni af Crystal Palace
433Sport
Fyrir 19 klukkutímum

Líkur á að Nuno verði rekinn – Er óhress og Ange er nefndur til sögunnar

Líkur á að Nuno verði rekinn – Er óhress og Ange er nefndur til sögunnar
433Sport
Fyrir 23 klukkutímum

Tíu ára gömul færsla Eze vekur athygli – Allt virtist vera á leið í skrúfuna en hann vissi betur

Tíu ára gömul færsla Eze vekur athygli – Allt virtist vera á leið í skrúfuna en hann vissi betur
433Sport
Fyrir 23 klukkutímum

Real Madrid vill kaupa enska landsliðsmanninn – Þurfa að selja Rodrygo til að fjármagna það

Real Madrid vill kaupa enska landsliðsmanninn – Þurfa að selja Rodrygo til að fjármagna það
433Sport
Í gær

Ten Hag fór til Manchester og sótti leikmann

Ten Hag fór til Manchester og sótti leikmann
433Sport
Í gær

Þrjár útgáfur af byrjunarliði Arsenal með Eze innanborðs

Þrjár útgáfur af byrjunarliði Arsenal með Eze innanborðs