Aston Villa tryggði sér sæti í ensku úrvalsdeildinni í síðasta mánuði og er komið aftur í efstu deild.
Villa spilaði við Derby í úrslitaleik umspilsins og fagnaði að lokum 2-1 sigri á Wembley.
Ross McCormack var ekki með Villa í þessum leik en hann kom til félagsins frá Fulham fyrir þremur árum.
McCormack stóð sig frábærlega fyrir Fulham og borgaði Villa 12 milljónir punda fyrir leikmanninn.
Hann gerði fjögurra ára samning á Villa Park og fékk 60 þúsund pund í vikulaun. Hann hefur fengið þau laun borguð í rúmlega þrjú ár.
McCormack spilaði sinn síðasta leik fyrir Villa árið 2017 en hann lék alls 20 leiki í deildinni og skoraði þrjú mörk.
Villa fékk strax nóg af McCormack og hefur hann undanfarin ár spilað með fjórum mismunandi liðum á láni.
Nú hefur Villa loksins náð að losna við Skotann en samningi hans var í dag rift, eftir þrjú skelfileg ár.
McCormack hefði fengið væna launahækkun fyrir næstu leiktíð þar sem Villa tryggði sér sæti í efstu deild.