,,Getið þið ekki tekið þessa mynd niður af Hatara – Það eru ekki allir Man.Utd fans sem vilja þetta hér. Ég er einn af þeim. Setjið frekar upp Man.Utd merkið hér. Alls ekki Hatara dæmið,“ skrifar maður að nafni Finnur í stuðningsmannaklúbb Manchester United á Íslandi, í dag.
Mynd af Hatara frá því á úrslitakvöldinu í Eurovison er nú forsíðumynd, á Facebook svæði stuðningsmanna United, á Íslandi. Þar er búið að breyta fána Palestínu, sem Hatari hélt hét á lofti í Ísrael. Í fána Manchester United, Finni er afar illa við það. Myndina má sjá hér að ofan og neðan.
,,Ég vill ekki þurfa að horfa á þessa mynd í allt sumar. Út með hana í hvelli – PLZ – Ég var einn af þeim sem fannst myndbandið við þetta lag vera ógeðslegt. Þeir eru ekki góðir söngvarar,“ skrifar Finnur og fær mikil viðbrögð, flestiru eru ósammála honum en sumir taka undir.
,,Nei bara svona af því bara Get eg ekki verið stuðningsmaður Manchester united án þess að sjúga typpið á Palestínumönnum ? Niður með þessa Hatara mynd,“ skrifar Úlfar Þór um málið.
Margir segja Finni að sleppa því að horfa á myndina, það einfaldi honum lífið. ,,Ef þið veljið þessa mynd fram yfir að ég hætti að heimsækja Man.Utd síðuna reglulega. Þá er það ykkar mál. Þessi mynd hefur ekkert að gera með Man.Utd. Ég vill hana í burtu sem fyrst;“ segir Finnur en gaman verður að fylgjast með, hvort hann standi við stóru orðin.