Samkvæmt heimildum íþróttadeildar Fréttablaðsins er Gary Martin að semja við ÍBV út tímabilið eftir að hann var leystur undan samningi hjá Val um helgina.
Gary Martin hefur yfirgefið lið Val í Pepsi Max-deild karla en þetta staðfesti félagið fyrir helgi. Gary kom til Vals fyrir þetta tímabil en honum var bannað að mæta á æfingu hjá félaginu undir restina.
Fréttablaðið segir að Gary muni semja við ÍBV út tímabilið en hann fær leikheimild 1. júlí.
Ólafur Jóhannesson, þjálfari Vals og Gary áttu ekki skap saman og var ákveðið að rifta samningi leikmannsins. Gary gekk í raðir Vals í janúar og gerði þriggja ára samning, ljóst er að Valur hafur þurft að greiða framherjanum talsverða upphæð.
„Gary Martin fer hlæjandi í bankann og getur spilað með nýju liði 1. júlí. Það er rétt að staldra við. Hvað er í gangi á Hlíðarenda? Þetta er félag sem keypti átta leikmenn fyrir tímabilið, það eru menn þarna hoknir af reynslu og þetta eru Íslandsmeistarar tveggja síðustu ára. Þeir eru með fjögur stig og ekki búnir að vinna leik á Hlíðarenda. Hvað er í gangi?,“ spurði Hörður Magnússon í Pepsi Max-mörkunum í gær.