Leory Sane er aftur á varamannabekk Manchester City gegn Tottenham í Meistaradeildinni í kvöld.
Seinni leikur liðanna fer fram í Manchester en Tottenham vann fyrri viðureignina 1-0 í London.
Sane fær ekki sénsinn í annað skiptið í röð og þarf að sætta sig við bekkjarsetu. Tottenham er þá án framherjans Harry Kane sem er meiddur.
Hér má sjá byrjunarlið kvöldsins.
Manchester City : Ederson, Walker, Kompany, Laporte, Mendy, Gundogan, Silva, De Bruyne, Bernardo, Sterling, Aguero.
Tottenham: Lloris, Trippier, Alderweireld, Vertonghen, Rose, Wanyama, Sissoko, Alli, Eriksen, Lucas, Son.