Það er mikil spenna fyrir leik Liverpool og Napoli á morgun en spilað er í riðlakeppni Meistaradeildarinnar.
Bæði lið eiga möguleika á því að komast í 16-liða úrslit keppninnar og er lokaleikurinn á morgun því mjög mikilvægur.
Tapliðið á í hættu á að fara í Evrópudeildina en þar er spilað á fimmtudögum.
Jamie Redknapp, fyrrum leikmaður Liverpool, segir að félagið verði að forðast það að enda í þeirri deild.
,,Leikurinn á þriðjudaginn er stærsti leikur tímabilsins fyrir Liverpool. Úrslitin segja mikið um hvort Liverpool geti unnið ensku úrvalsdeildina,“ sagði Redknapp.
,,Að komast ekki áfram er ekki aðeins mikið högg á sjálfstraustið heldur mun liðið einnig spila í Evrópudeildinni.“
,,Að spila á fimmtudögum og svo á sunnudögum er erfitt og það er líklegra að þú verðir að elta í deildinni. Það myndi ógna möguleikunum.“