Jose Mourinho, stjóri Manchester United, var mættur á leik Englands og Spánar í Þjóðadeildinni í kvöld.
Mourinho og hans menn í United eru í fríi þessa stundina þó að ófáir leikmenn liðsins séu landsliðsmenn.
Mourinho lenti í leiðindaratviki fyrir leik en hann féll í jörðina er hann gerði sér leið á völlinn.
Sem betur fer er í lagi með Portúgalann sem stóð upp og hristi þetta af sér.
Stuðningsmaður Chelsea náði myndum af atvikinu í dag en myndband náðist þó ekki.
Hér má sjá myndirnar.