Heimir Hallgrímsson hefur valið HM hóp sinn sem fer til Rússlands en valið var kynnt rétt í þessu.
Smelltu hér til að sjá hópinn sem fer til Rússlands
Það vakti mikla athygli þegar einn eldri maður steig upp á fundinum og spurði Heimi spurninga. Spurningin snérist um valið á markvörðunum en maðurinn heitir Steinar.
Hann var afar ósáttur með að Ögmundur Kristinsson skildi ekki vera í hópnum en Rúnar Alex Rúnarsson og Frederik Schram voru valdir með Hannesi.
Spurningarnar voru furðulegar og maðurinn var óhress, um var að ræða tengdapabba Ögmundar en þetta fullyrðir Andri Yrkill Valsson blaðamaður á Morgunblaðinu.
Maðurinn var óhress og lét það í ljós en iðulega eru það fréttamenn sem sjá um spurningar á fundum en ekki fjölskyldumeðlimir.
Tengdapabbi landsliðsmanns sem er ekki að fara á HM fær að valsa inn á blaðamannafund og reyna að tala um fyrir landsliðsþjálfurunum. #fotboltinet
— Andri Yrkill Valsson (@AndriYrkill) May 11, 2018