fbpx
Laugardagur 27.apríl 2024

Kvennamorðinginn „Cody“

Einnar viku morðæði kostaði þrjár konur lífið

Kolbeinn Þorsteinsson
Laugardaginn 21. janúar 2017 21:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Það var engu tauti komið við þriggja dómara teymi í Jefferson-sýslu í Colorado í Bandaríkjunum þann 29. September 1999. Þrátt fyrir að William „Cody“ (sennilega til „heiðurs“ William Frederick „Buffalo Bill“ Cody) Neal sværi og sárt við legði að hann væri ekki lengur sami maður og myrti með hrottalegum hætti þrjár konur í vikulöngu morðæði í júlí 1998. William sagðist vilja lifa svo hann gæti unnið verk Guðs innan veggja fangelsisins, en honum tókst ekki að sannfæra dómarana sem ákváðu að lífi hans yrði ekki þyrmt og hann þess í stað dæmdur til dauða.

Neydd til að horfa á

William, sem fæddist árið 1955, játaði sig sekan um að hafa barið til dauðs Angelu Fite, Candace Walters og Rebeccu Holberton með bolöxi.

Ein kona, 22 ára, lifði af kynni sín við William, en hún bar fyrir dómi að hann hefði bundið hana við rúm í húsi því sem hann nýtti til morðanna.

William neyddi hana til að horfa á þegar hann braut höfuðkúpuna á Angelu Fite með fleyg. Að því loknu nauðgaði hann konunni.

Eini viðeigandi dómurinn

Við dómsuppkvaðninguna sagði einn dómaranna, Thomas Woodford, við William að glæpir hans væru „hrottaleg, tilefnislaus dráp“ að ónefndum þeim harmi sem hann hefði valdið ættingjum fórnarlambanna.

Woodford sagði að dómaranir hefðu „komist að þeirri niðurstöðu að eina refsingin sem hægt væri að beita, sem samræmdist þeim lögum sem dómararnir hefðu svarið að framfylgja, væri dauðadómur.“

Sá sjálfur um vörnina

Ákæruvaldið vísaði á bug fullyrðingum Williams, sem sá um eigin vörn, um að hann hefði myrt konurnar í þeim tilgangi að fela að hann hafði rænt þær fé.

Sjálfur bar William aldrei brigður á ákæruatriðin og afþakkaði, þá tíu daga sem réttarhöldin stóðu, að gagnspyrja vitni ákæruvaldsins.

William fór ekki í launkofa með þá skoðun sína að hann ætti enga miskunn skilda, en sagði, sem fyrr segir, að hann væri breyttur maður og gengið Guði á hönd.

Sú fullyrðing féll í grýtta jörð hjá saksóknara Jefferson-sýslu, Dave Thomas, og hafði hann á orði að glæpir Williams væru „klæðskerasniðnir“ að dauðarefsingu.

Níu önnur ákæruatriði

Hver veit nema Dave Thomas hafi haft eitthvað til síns máls því lýsingar lögregluþjóna sem komu á vettvang gætu allt eins hafa átt við sláturhús. Thomas hafði enda á orði að hann hefði ekki heyrt viðlíka vitnisburð í 26 ára starfi sem saksóknari: „Mér rann kalt vatn milli skinns og hörunds.“

Þegar þarna var komið sögu stóð William frammi fyrir níu öðrum ákæruatriðum tengdum morðunum; kynferðislegu ofbeldi, mannránum og þjófnuðum þar á meðal.
Í lokin er vert að geta þess að árið 2003 var dómur yfir William Neil mildaður og í stað dauðarefsingar fær hann að dúsa á bak við lás og slá það sem eftir er ævinnar.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 5 klukkutímum

Halla Hrund komin með forystu í nýrri skoðanakönnun – Skýtur Katrínu og Baldri ref fyrir rass

Halla Hrund komin með forystu í nýrri skoðanakönnun – Skýtur Katrínu og Baldri ref fyrir rass
433Sport
Fyrir 5 klukkutímum

Liverpool og Feyenoord að ganga frá smáatriðum

Liverpool og Feyenoord að ganga frá smáatriðum
433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Fyrstu kaup Slot gætu orðið áhugaverð – Kostaði lítið fyrir ári en nú kostar hann tæpa 10 milljarða

Fyrstu kaup Slot gætu orðið áhugaverð – Kostaði lítið fyrir ári en nú kostar hann tæpa 10 milljarða
Fókus
Fyrir 7 klukkutímum

MeToo-byltingin nötrar eftir sláandi bakslag – Verður Weinstein laus allra mála?

MeToo-byltingin nötrar eftir sláandi bakslag – Verður Weinstein laus allra mála?
433Sport
Fyrir 9 klukkutímum

Chelsea skoðar að reka Pochettino – Þrír menn á lista

Chelsea skoðar að reka Pochettino – Þrír menn á lista
Fókus
Fyrir 9 klukkutímum

60 ára og skrefi nær því að verða elsti þátttakandi Miss Universe

60 ára og skrefi nær því að verða elsti þátttakandi Miss Universe
Fókus
Fyrir 11 klukkutímum

Þurfti að læra að lifa upp á nýtt eftir maníu – „Það er partur af mér að vera með geðhvarfasýki og það er enginn dauðadómur, trúðu mér“

Þurfti að læra að lifa upp á nýtt eftir maníu – „Það er partur af mér að vera með geðhvarfasýki og það er enginn dauðadómur, trúðu mér“
433Sport
Fyrir 11 klukkutímum

Dregið í bikarnum – Stórleikur í Garðabænum

Dregið í bikarnum – Stórleikur í Garðabænum