Á mánudag fyrir viku varð hinn tuttugu og átta ára gamli Msizi Mkize fyrir bifreið í heimaborg sinni, Durban, í Suður-Afríku. Um var að ræða alvarlegt slys og var Mhkize úrskurðaður látinn á staðnum.
Í frétt breska blaðsins Times kemur fram að Mkhize hafi verið fluttur í líkhúsið að kvöldi mánudagsins, skömmu eftir slysið, þar sem líkinu var komið fyrir í kæli. Daginn eftir, þegar fjölskyldumeðlimir komu til að bera kennsl á líkið, kom í ljós að Mkhize var á lífi, púls hafði fundist.
Mkhize var í snatri komið á sjúkrahús þar sem læknar reyndu að bjarga lífi hans. Allt kom fyrir ekki og lést hann fimm klukkustundum síðar, á þriðjudeginum. Í frétt Times kemur fram að lögreglan í Durban hafi staðfest að atvikið hafi átt sér stað og mun rannsókn fara fram á því hvað fór úrskeiðis.
„Við komum þarna klukkan átta að morgni til að ganga frá pappírum og bera kennsl á lík sonar míns,“ segir faðir Mkhize, Peter Mkhize, í samtali við Daily News í Suður-Afríku. „Ég á engin orð til að lýsa tilfinningum mínum og því sem kom fyrir son minn. Það er mjög rangt að þurfa að eyða hálfum sólarhring í ísskáp í líkhúsi,“ bætir hann við.