fbpx
Föstudagur 26.apríl 2024

Dóp, drykkja og dráp

Joanna missti tök á eigin lífi – Aðrir misstu einfaldlega lífið

Kolbeinn Þorsteinsson
Miðvikudaginn 12. október 2016 10:12

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Bretinn John Treanor hitti Joönnu Dennehy árið 1997. John var þá 21 árs og Joanna 15 ára og bjó hún hjá foreldrum sínum í St. Albans í Hertfordshire. Skötuhjúin settust að í Luton í Bedfordshire og fluttu til Milton Keyes árið 2001. Þar bjuggu þau í fjögur ár en fluttu þá til Wisbech, rólegs bæjar í Cambridgeshire. Þar leigðu þau íbúð af bæjarfélaginu, unnu hvorugt þegar þarna var komið sögu en fleyttu sér áfram á bótum Joönnu. Reyndar fór drjúgur skerfur bótanna einnig í áfengi og eiturlyf fyrir Joönnu. Þau eignuðust tvö börn.

John flýr

En allt er breytingum háð og snemma árs 2009 var ekki snefill eftir af ungu konunni sem John hafði orðið ástfanginn af. Joanna sem hafði alið með sér þann draum að verða lögfræðingur var með öllu horfin á vit drykkju og dópneyslu og víða á líkama hennar mátti sjá ör eftir áverka sem hún hafði sjálf veitt sér.

„Ég vissi að ég yrði að koma mér í burtu þegar hún dró sex tomma rýting úr hnéháu stígvéli sínu og lét hann vaða í teppið, augun köld og tóm,“ sagði John um kornið sem fyllti mælinn.

Innan skamms hafði hann flutt, ásamt dætrunum tveimur, og settist að í órafjarlægð frá Joönnu.

Heimsókn frá lögreglu

Leið nú tíminn. John ruglaði reytum með annarri konu sem gekk dætrum hans í móðurstað og fortíðin virtist sem slæmur draumur. En Adam var ekki lengi í paradís. Fjórum árum eftir að hann yfirgaf Joönnu fékk John heimsókn frá lögreglunni; Joanna var grunuð um að hafa myrt þrjá menn.

Upp úr miðjum nóvember, 2013, kom Joanna öllum á óvart í Old Bailey-dómsalnum í London. Vafningalaust játaði hún sig seka um að hafa myrt þrjá menn og fleygt líkum þeirra í skurði. Flestir viðstaddra höfðu reiknað með að hún neitaði sök en hún bætti um betur og viðurkenndi einnig að hafa reynt að myrða tvo menn að auki.

Skýlaus játning

Verjendur hennar báðu um frestun til að kanna til hlítar hvort hún vildi í raun játa sök. Öllum slíkum tillögum vísaði Joanna til föðurhúsanna: „Ég er búin að játa mig seka, og það stendur.“

Verjandi hennar var þó ekki tilbúinn til að gefa eftir og ámálgaði möguleikann á frestun enn frekar, en Joanna greip fram í fyrir honum og sagði: „Ég ætla ekki að koma aftur hingað til þess eins að endurtaka það sem ég hef þegar sagt.“

Dómarinn var á sama máli og Joanna og sá ekki ástæðu til að draga málið á langinn: „Hún hefur sjálfviljug lýst sig seka um nokkur ákæruatriði. Ef til þess skyldi koma að það breyttist eitthvað mun ég íhuga frestun – en ef ekki þá stendur játningin.“

Stungnir til bana

Fórnarlömb Joönnu voru Kevin Lee, 48 ára fasteignabraskari, og sambýlingar Joönnu; Lukasz Slaboszewski, 31 árs, og John Chapman, 56 ára.

Kevin var myrtur 29. mars 2013 og fannst lík hans daginn eftir í skurði í Petersborough. Hann hafði verið stunginn í bringuna. Lukasz Slaboszewski var stunginn í hjartað og John Chapman í bringuna og hálsinn. Lík þeirra fundust 3. apríl, einnig í skurði í Petersborough.

Joanna viðurkenndi að hafa reynt að myrða Robin Bereza og John Rogers, en þeir sluppu með skrekkinn.

Joanna var handtekin 2. apríl, 2013, og játaði sekt sína 18. nóvember sama ár.

Þannig er nú það.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 3 klukkutímum

Snorri Jakobsson: Fyrstu vaxtahækkanirnar 2021 voru bara upp á punt – þær síðustu of miklar

Snorri Jakobsson: Fyrstu vaxtahækkanirnar 2021 voru bara upp á punt – þær síðustu of miklar
433Sport
Fyrir 4 klukkutímum

Fyrstu kaup Slot gætu orðið áhugaverð – Kostaði lítið fyrir ári en nú kostar hann tæpa 10 milljarða

Fyrstu kaup Slot gætu orðið áhugaverð – Kostaði lítið fyrir ári en nú kostar hann tæpa 10 milljarða
Fréttir
Fyrir 7 klukkutímum

Kári Hansen skilaði inn meðmælum til forseta Íslands rafrænt

Kári Hansen skilaði inn meðmælum til forseta Íslands rafrænt
Fókus
Fyrir 8 klukkutímum

Þurfti að læra að lifa upp á nýtt eftir maníu – „Það er partur af mér að vera með geðhvarfasýki og það er enginn dauðadómur, trúðu mér“

Þurfti að læra að lifa upp á nýtt eftir maníu – „Það er partur af mér að vera með geðhvarfasýki og það er enginn dauðadómur, trúðu mér“
433Sport
Fyrir 9 klukkutímum

Solskjær með áhugavert tilboð á borði sínu

Solskjær með áhugavert tilboð á borði sínu
Fréttir
Fyrir 9 klukkutímum

Viktor er óvænti forsetaframbjóðandinn: Safnaði 1.500 meðmælendum nánast í kyrrþey – Kostnaðurinn aðallega tími,bensín og sjoppusamlokur

Viktor er óvænti forsetaframbjóðandinn: Safnaði 1.500 meðmælendum nánast í kyrrþey – Kostnaðurinn aðallega tími,bensín og sjoppusamlokur