fbpx
Laugardagur 27.apríl 2024

„Falleg svo nístir“

Farið yfir einstakan feril Jóhanns Jóhannssonar

Kristján Guðjónsson
Föstudaginn 16. febrúar 2018 06:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Um síðustu helgi bárust þær fréttir að Jóhann Jóhannsson, tónskáld og einn þekktasti tónlistarmaður Íslands, hefði látist á heimili sínu í Berlín langt fyrir aldur fram, aðeins 48 ára að aldri. Jóhann var löngu búinn að sanna sig í íslensku rokki og tilraunalistasenunni þegar hann sló í gegn í Hollywood, en á undanförnum árum hefur hann unnið sér sess sem eitt sérstæðasta en um leið eftirsóttasta tónskáld kvikmyndaheimsins.

Úr lúðrasveit í rokkið

Jóhann fæddist í Reykjavík í september árið 1969 en bjó hluta barnæskunnar í Frakklandi, hann byrjaði að læra á básúnu á barnsaldri og lék meðal annars með lúðrasveitinni Svaninum. Á unglingsaldri fór hann að spila á gítar og fikta við hljóðgervla. Hann vakti fyrst athygli tæplega tvítugur með skógláps-rokksveitinni Daisy Hill Puppy Farm – en sveitin vakti meðal annars athygli hins áhrifamikla breska útvarpsmanns John Peel. Eftir að sú sveit lagði upp laupana lék Jóhann með og starfaði sem upptökustjóri fyrir fjölda íslenskra rokk- og poppverkefna á borð við HAM, Unun, Pál Óskar, Lhooq, auk þess sem hann hélt um árabil úti hljóðveri sem hann kallaði Nýjasta tækni og vísindi.

Hann var mikil driffjöður í listasenunni og var til að mynda einn aðstandenda Tilraunaeldhússins, sem um árabil stefndi á óvæntan hátt saman ólíkum listamönnum í íslensku listalífi. Þar fæddist einmitt hljómsveit hans Apparat Organ Quartet árið 1999. Hún byrjaði sem naumhyggjulegur organkvartett en þróaðist yfir kröftugt raf-rokkband í anda sveita á borð við Kraftwerk. Í Lestinni á Rás 1 á dögunum lýsti Úlfur Eldjárn, einn meðlima sveitarinnar, samstarfinu sem frjóu en fullu af togstreitu – enda hafi Jóhann, ekki síður en aðrir meðlimir sveitarinnar, haft sterkar og afdráttarlausar skoðanir á tónlist.

Fimm fingraför Jóhanns

Stanslaust stuð Ásamt Sigurjóni Kjartanssyni tók Jóhann Jóhannsson þátt í að semja og taka upp fyrstu sólóplötur Páls Óskar – plötur sem mörkuðu Páli Óskari stöðu sem einn vinsælasti poppsöngvari þjóðarinnar. Hann stýrði til að mynda upptökum á laginu Stanslaust stuð sem er líklega eitt vinsælasta lag íslenskrar poppsögu.

Apparat Organ Quartet Jóhann stofnaði organkvartettinn Apparat árið 1999 og hefur sveitin gefið út tvær plötur og notið mikilla vinsælda, bæði heima og erlendis. Hann hætti í sveitinni árið 2012 en sveitin er ennþá starfandi.

Dís Jóhann samdi tónlist við nokkrar íslenskar kvikmyndir í upphafi aldarinnar. Sú sem vakti kannski hvað mesta athygli var tónlistin við kvikmyndina Dís sem kom út árið 2004 og var tónlistin gefin út á geisladiski.

IBM 1401 – A User’s Manual Jóhann vann dansverkið IBM 1401 – A User’s Manual árið 2002 með Ernu Ómarsdóttur dansara. Erna segir sjálf að verkið hafi verið fyrsta dansverk hennar sem hafi vakið mikla athygli og ráðið úrslitum um það að hún hélt áfram á þeirri braut.

Sicario Tónlistin í spennumyndinni Sicario vakti gríðarlega athygli og varð Jóhann fyrsti Íslendingurinn til að vera tilnefndur til Óskarsverðlaunanna fyrir kvikmyndatónlist. Tónlistin var virkilega áhrifamikil og aðalleikarinn Josh Brolin hefur til að mynda sagt tónlistina vera bestu kvikmyndatónlist sem hann hafi nokkurn tímann heyrt.

Framvörður nýklassíkur

Um aldamót fór Jóhann að semja tónlist fyrir leikhús, sjónvarp og kvikmyndir af fullum krafti og var fyrsta kvikmyndin í fullri lengd sem hann gerði tónlist fyrir Íslenski draumurinn. Fyrsta sólóplata Jóhanns, Englabörn, kom út árið 2002 og var hún byggð á tónlist sem hann vann fyrir samnefnt leikrit Hávars Sigurðssonar í Hafnarfjarðarleikhúsinu. Undurfalleg tónlistin, sem var í algjörri og áhrifamikilli andstöðu við harkalegan efnivið verksins, vakti athygli langt út fyrir landsteinana, og fékk til að mynda 8,9 af 10 mögulegum í einkunn hjá smekkmótandi indívefritinu Pitchfork. Platan þykir enn í dag eitt hans besta verk og verður raunar endurútgefin í næsta mánuði af einu allra virtasta útgáfufyrirtæki á sviði klassískrar tónlistar, Deutsche Grammophone, með ýmsum tilbrigðum. „Píanóútgáfa hans af Englabörnum er falleg svo nístir, það er í henni magnaður tími og tímaleysi, eins og í svo mörgum af hans bestu verkum,“ segir Víkingur Heiðar Ólafsson píanóleikari sem leikur í nýju píanóútgáfunni af plötunni.

„Það voru svo miklar andstæður í tónlistinni hans. Hann gat farið í mjög metal-áttir, eins og með HAM og Apparat en svo fór hann alveg á staði sem fengu hörðustu gaura til að fara að skæla,“ segir Erna Ómarsdóttir, listrænn stjórnandi Íslenska dansflokksins, sem vann með Jóhanni að dansverkunum IBM 1401 – A User’s Manual og Mysteries of Love.

Jóhann var fljótt stimplaður sem einn af framvörðum hinnar nýklassísku bylgju í tónlist, hugtaks sem hefur verið notað yfir tónlistarmenn á mörkum sígildrar- og dægurtónlistar, sem beita jafnt tækjum klassískrar og raftónlistar. Hann var að mestu sjálflærður í tónlist en í viðtali við Morgunblaðið árið 2008 talaði hann þó um að háskólanám sitt í bókmenntum og tungumálum hafi ekki verið síðri bakgrunnur fyrir ferilinn. Vinir Jóhanns sem hafa minnst hans á samfélagsmiðlum í vikunni hafa margir hverjir lagt áherslu á hversu vel lesinn og vel að sér Jóhann var í hinum ólíkustu listmiðlum, ekki síður kvikmyndum og bókmenntum en tónlist. Aukin áhersla hans á kvikmyndatónlist kom því fáum á óvart. Páll Óskar Hjálmtýsson, sem Jóhann vann að fyrstu tveimur plötunum með, sagði til að mynda í viðtali á Rás 2 árið 2016 að þeir hafi eytt meiri tíma í að tala um kvikmyndir en tónlist þegar þeir unnu saman að plötum Páls á tíunda áratugnum.

Myrkrið og ljósið

Myrkrið og ljósið

„Það voru svo miklar andstæður í tónlistinni hans. Hann gat farið í mjög metal-áttir, eins og með HAM og Apparat en svo fór hann alveg á staði sem fengu hörðustu gaura til að fara að skæla,“ segir Erna Ómarsdóttir, dansari, danshöfundur og listrænn stjórnandi Íslenska dansflokksins, sem vann með Jóhanni að dansverkunum IBM 1401 – A User’s manual og Mysteries of Love. „Við tengdum vel í sambandi við listrænan smekk, vorum bæði fyrir öfgarnar, myrkrið og ljósið, fegurð, ljótleika og allt þar á milli.“

Samstarf þeirra hófst eftir að þau komust að því að feður þeirra beggja höfðu unnið hjá tölvufyrirtækinu IBM og verið viðstaddir kveðjuathöfn fyrstu tölvunnar á landinu: IBM 1401. Þau unnu dans- og tónverk út frá hljóðum tölvunnar og þessari tregablöndnu kveðjuathöfn hennar.

Erna segir að það hafi meðal annars verið tónlist Jóhanns, samtöl við hann og hans hvatning sem gaf henni innblástur og sjálfsöryggi til að halda áfram að skapa eigin dansverk í kjölfarið. „IBM var fyrsta verkið í mínu eign nafni sem varð eftirsótt. Tónlist Jóhanns gaf mér svo mikinn innblástur, orku, tilfinningalegt gildi og ástæður fyrir mig  til að dansa af öllum lífs og sálar kröftum – tónlistin hans var minn mótor í þessu öllu saman,“ segir Erna.

Á topp Hollywood-hæða

Tónlistin við Englabörn markaði að vissu leyti upphafið að kvikmyndatónlistarferli Jóhanns á erlendum vettvangi, en tvö lög úr myndinni voru notuð í Hollywood-myndinni Wicker Park. Eftir að hafa unnið tónlist við nokkrar kvikmyndir hér á landi var fyrsta erlenda kvikmyndin í fullri lengd sem hann samdi fyrir Personal Effects, sem kom út árið 2009. Eftir að hafa samið fyrir nokkrar misgóðar kvikmyndir vakti hann loks verðskuldaða athygli þegar hann vann tónlist við mynd fransk-kanadíska leikstjórans Denis Villenueve, Prisoners – en það samstarf átti eftir að fleyta þeim báðum í upp á topp Hollywood-hæða með kvikmyndunum Sicario og Arrival. Leiðir skildi hins vegar þegar þeir unnu að Blade Runner 2049 þar sem Jóhann var settur til hliðar – af ástæðum sem enn hafa ekki verið opinberaðar – fyrir eitt allra helsta kvikmyndatónskáld samtímans, Hans Zimmer.

Eftir Prisoners hrúguðust verðlaunin inn: BAFTA, Golden Globe og tilnefningar til Óskarsverðlaunanna fyrir tilfinningaþrungna og rómantíska tónlistina í The Theory of Everything og gæsahúðarvaldandi óhugnaðinn í Sicario. Verkefnin urðu æ stærri og þegar hann lést var Jóhann til að mynda byrjaður að semja tónlist fyrir stóra Disney-mynd, Christopher Robin.

Á sama tíma og Jóhann sinnti kvikmyndatónsmíðum af miklum krafti hafði hann einnig unnið að fjölda annarra verkefna, gefið út sjö sólóplötur og nýlega einnig farið að spreyta sig sjálfur á sviði kvikmyndanna með svarthvítu, listrænu heimildamyndinni End of Summer. Vinir hans tala flestir um allt að því ómannlegan dugnað og vinnuþrek hjá Jóhanni, ástríðu og óþrjótandi forvitni.

Víkkaði út formið

Eftir andlát hans hafa fjölmiðlar heimsins reynt að greina áhrif og arfleifð Jóhanns í heimi kvikmyndanna. Það þykir nokkuð óvenjulegt hvað hann hefur skapað sér sérstakan stíl á tímum þegar kvikmyndatónlist verður æ keimlíkari. Kvikmyndavefurinn Variety segir hann til að mynda hafa víkkað út hugmyndir fólks um hvað kvikmyndatónlist geti verið og áhrif hans muni enduróma um langa tíð.

Jóhann sagði frá því í viðtölum að hann reyndi að byrja að semja tónlistina áður en tökur hæfust á kvikmynd og þannig koma í veg fyrir að önnur tónlist væri tímabundið sett undir þegar myndin væri klippt, en sú aðferð leiðir oft til þess að leikstjórar vilja fá tónlist í sama anda yfir myndirnar sínar.

Hann samdi fyrir hefðbundin klassísk hljóðfæri en nýtti sér ekki síður hina ýmsu stafræna eða hliðræna breytingu og brenglun hljóða – áhrifin frá ýmiss konar tilraunakenndri tónlist, raftónlist jafnt sem hávaðalist leyna sér ekki. Það sem skiptir þó mestu máli er að Jóhann lagði áherslu á að tónlistin væri hluti af sjálfri kvikmyndinni, ynni með myndunum, í stað þess að hún væri bara samin eftir á og lögð yfir myndefnið. „Þegar ég er að semja tónlist fyrir kvikmynd, er ég kvikmyndagerðarmaður,“ sagði hann sjálfur í útvarpsþættinum Stefnumót við tónskáld á Rás 1 árið 2016.

Eitt besta dæmið um þessa tilfinningu og virðingu Jóhanns fyrir heildarverkinu er kannski vinna hans við Mother! eftir Darren Aronofsky sem var frumsýnd í fyrra. Jóhann hafði samið tónlist við myndina en ráðlagði leikstjóranum að lokum að sleppa henni því myndin væri betri án tónlistar – og var því titlaður sem hljóð- og tónlistarráðgjafi frekar en tónskáld. „Hann bauð áhorfendum að hugsa frekar en að hann segði þeim hvernig þeim átti að líða,“ segir í áðurnefndri grein Variety.

Falleg svo nístir

Falleg svo nístir

„Ég kynntist Jóhanni á síðustu árum í Berlín og við unnum saman síðasta sumar þegar ég tók upp nýja píanóútgáfu sem hann gerði af Englabörnum, en samnefnd plata, sólódebútið hans frá 2002, verður endurútgefin af Deutsche Grammophon (útgáfufyrirtæki okkar beggja) núna í mars ásamt nýjum tilbrigðum við hana,“ segir Víkingur Heiðar Ólafsson píanóleikari.

„Það grunaði auðvitað engan að þetta yrði hans síðasta plata, og núna virkar þetta eins og hringur sem lokast, allt of snemma. Það er erfitt að ná utan um þá staðreynd. Píanóútgáfa hans af Englabörnum er falleg svo nístir, það er í henni magnaður tími og tímaleysi, eins og í svo mörgum af hans bestu verkum.

Ég var ekki í hans innsta hring en mér þótti vænt um hann og það var afar eftirminnilegt að vinna með honum og tala við hann um tónlist. Hann var svo forvitinn og djúpur, það komu margir heimar saman í honum. Á bak við einföldustu verk var undantekningarlaust þrotlaus vinna og vangaveltur. Og kvikmyndatónlistin hans þurfti í raun engar kvikmyndir; tónlistin sagði magnaðar sögur ein og sér. Það var sannur þráður í Jóhanni, engin tilgerð, tónlistin var lífið og tónlistin hans mun lifa um ókomin ár. Hans er sárt saknað víða um heim.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 9 klukkutímum

Halla Hrund komin með forystu í nýrri skoðanakönnun – Skýtur Katrínu og Baldri ref fyrir rass

Halla Hrund komin með forystu í nýrri skoðanakönnun – Skýtur Katrínu og Baldri ref fyrir rass
433Sport
Fyrir 9 klukkutímum

Liverpool og Feyenoord að ganga frá smáatriðum

Liverpool og Feyenoord að ganga frá smáatriðum
433Sport
Fyrir 11 klukkutímum

Fyrstu kaup Slot gætu orðið áhugaverð – Kostaði lítið fyrir ári en nú kostar hann tæpa 10 milljarða

Fyrstu kaup Slot gætu orðið áhugaverð – Kostaði lítið fyrir ári en nú kostar hann tæpa 10 milljarða
Fókus
Fyrir 11 klukkutímum

MeToo-byltingin nötrar eftir sláandi bakslag – Verður Weinstein laus allra mála?

MeToo-byltingin nötrar eftir sláandi bakslag – Verður Weinstein laus allra mála?
433Sport
Fyrir 13 klukkutímum

Chelsea skoðar að reka Pochettino – Þrír menn á lista

Chelsea skoðar að reka Pochettino – Þrír menn á lista
Fókus
Fyrir 13 klukkutímum

60 ára og skrefi nær því að verða elsti þátttakandi Miss Universe

60 ára og skrefi nær því að verða elsti þátttakandi Miss Universe
Fókus
Fyrir 15 klukkutímum

Þurfti að læra að lifa upp á nýtt eftir maníu – „Það er partur af mér að vera með geðhvarfasýki og það er enginn dauðadómur, trúðu mér“

Þurfti að læra að lifa upp á nýtt eftir maníu – „Það er partur af mér að vera með geðhvarfasýki og það er enginn dauðadómur, trúðu mér“
433Sport
Fyrir 15 klukkutímum

Dregið í bikarnum – Stórleikur í Garðabænum

Dregið í bikarnum – Stórleikur í Garðabænum