fbpx
Föstudagur 26.apríl 2024

Fegurðin blæðir úr jöklinum

Þorvarður Árnason segir sjónrænar rannsóknir ljósmynda geta miðlað hinum nánast óskiljanlegu hnattrænu loftslagsbreytingum

Kristján Guðjónsson
Sunnudaginn 30. apríl 2017 18:00

Þorvarður Árnason segir sjónrænar rannsóknir ljósmynda geta miðlað hinum nánast óskiljanlegu hnattrænu loftslagsbreytingum

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Þegar maður er á staðnum og í augnablikinu er maður alveg hugfanginn af fegurð jökulsins en þegar maður kemur heim og skoðar myndirnar við hlið eldri ljósmynda sem teknar voru veturinn áður eða nokkrum árum fyrr þá sér maður að breytingin getur ekki talist eðlileg – það er eitthvað slæmt á ferðinni,“ segir Þorvarður Árnason, doktor í umhverfisfræði og ljósmyndari.

Í áratug hefur Þorvarður tekið ljósmyndir af jöklum á Suðausturlandi og búið til mikinn myndabanka þar sem minnkun jöklanna af völdum hnattrænna loftslagsbreytinga sést greinilega. Þorvarður mun flytja erindi um upplifun sína af jöklaljósmyndun á ráðstefnunni Jöklar í bókmenntum, listum og lífi sem fer fram á Höfn í Hornafirði um helgina. Þar mun fjöldi fræði- og listamanna ræða um stöðu jökla í íslenskri menningu og ýmis efni tengd þessum mikilfenglegu náttúrufyrirbærum.

Fagurfræði jökulsins

„Við hjá Rannsóknasetri Háskóla Íslands á Höfn höfum haldið ráðstefnur um ýmis tengd efni, en ég held að þetta sé í fyrsta skipti sem rætt er um jökla með þessum þverfaglega hætti. Ef ég reyni að kristalla meginefni ráðstefnunnar er grunnspurningin: hvaða stöðu hafa jöklar í íslenskri menningu? Þessari spurningu getur hins vegar engin ein grein vísinda eða lista svarað út af fyrir sig heldur þarf að skoða hana frá víðu og fjölbreyttu sjónarhorni. Þess vegna erum við ekki bara að stefna saman vísinda- og listafólki heldur einnig fólki úr ólíkum undirgreinum vísinda og lista,“ segir Þorvarður.

„Ein stór undirspurning er um jökulinn sem fagurfræðilegt fyrirbæri, þessi fegurðaráhrif sem jökullinn hefur og birtast jafnt í skáldskap, daglegri umgengni okkar og, nú á dögum, ekki síst í upplifun ferðamanna sem koma hingað til að sjá jökla og önnur náttúruundur.

Þeir sem flytja erindi á ráðstefnunni eru flestir annaðhvort að velta fyrir sér fagurfræðilegum spurningum um jökla, það er hvaða áhrif jökullinn hefur á okkur og hvernig við upplifum hann, eða þá hinni hliðinni, hvaða áhrif við höfum á jöklana. Þá eru það auðvitað fyrst og fremst spurningar um áhrif hnattrænna loftslagsbreytinga sem eru að valda mjög hraðri hopun allra okkar helstu jökla. Við manneskjurnar erum að skaða og jafnvel útrýma þessum fyrirbærum.“

Ósýnilegar og óáþreifanlegar breytingar

Undanfarinn áratug hefur Þorvarður farið reglulega upp að Hoffellsjökli og öðrum jökulsporðum á suðausturhorninu og tekið ljósmyndir.

„Eftir að ég komst upp á lagið með að mynda jöklana finnst mér ekkert skemmtilegra. Það er toppurinn á tilverunni að ganga við og sérstaklega uppi á jöklum um hávetur. Þá eru þeir tærir og bláir, stundum í öllum regnbogans litum, endurspegla litinn úr loftinu og frá sólinni. Þetta er algjör paradís fyrir ljósmyndara. Í gegnum þessar göngu- og ljósmyndaferðir mínar hef ég hins vegar orðið vitni að þeim gríðarlega hröðu breytingum sem eru að eiga sér stað. Ég hef tekið mikið af myndum af jöklunum og fyrir vikið ég búinn safna í stóran ljósmyndabanka sem segir sögu þessara breytinga á síðustu tíu árum. Þegar maður tengir þessa fegurð sem maður upplifir saman við vitneskjuna um að jöklarnir séu að hverfa, þeir séu að minnka og verði þar af leiðandi ekki eins stórkostlegir, þá er svolítið eins og fegurðin sé nánast blæða út úr jöklunum.“

Getur ekki verið að ein af ástæðunum fyrir því að almenningur bregst ekki harðar við hnattrænum loftslagsbreytingum sé einmitt sú að meirihluti fólks verður hreinlega ekki var við þessar breytingar sem eiga sér stað á svo óskiljanlega stórum tímaskala?

„Jú, loftslagsbreytingar eru miklu erfiðari en önnur vandamál sem við þurfum að fást við, meðal annars vegna þess að þær gerast á svo rosalega löngum tíma. Hver og ein breyting út af fyrir sig er bara lítil, en svo magnast þær upp með tímanum. Hlýnun jarðar er að valda gríðarlega miklum og mörgum breytingum en við sjáum fæstar þeirra, þær virðast oftast vera ósýnilegar og óáþreifanlegar.“

Getur jöklaljósmyndun þá verið sérstaklega gagnleg til að gefa fólki tilfinningu fyrir þessum breytingum sem það nær sjálft ekki að skynja eða skilja?

„Já, það er stundum talað um jöklana sem kanarífuglinn í kolanámunni, fyrirboða um eitthvað slæmt sem er að gerast. Þeir eru því oft notaðir til að sýna raunveruleika hnattrænna loftslagsbreytinga. Fólk upplifir breytingarnar ekki á eigin skinni og ef þú býrð ekki á Hornafirði og ferð að taka ljósmyndir af jökli nokkrum sinnum í mánuði yfir langt tímabil, þá tekur þú hreinlega ekki eftir þeim. Þess vegna eru margir sem hafa verið að nota ljósmyndir og kvikmyndir af jöklum sem vitnisburð um hvernig náttúran er að breytast til hins verra. Þar með getur fólk séð að þetta er ekki bara eitthvert mál sem vísindamenn eru að ræða á tungumáli sem enginn skilur.“

Ráðstefnan Jöklar í bókmenntum, listum og lífinu fer fram á Höfn í Hornafirði og Hoffelli 28. til 30. apríl. Samhliða ráðstefnunni verða settar upp sýningar af ýmsu tagi, til að mynda málverkasýning, ljósmynda- og kortasýning.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 3 klukkutímum

Snorri Jakobsson: Fyrstu vaxtahækkanirnar 2021 voru bara upp á punt – þær síðustu of miklar

Snorri Jakobsson: Fyrstu vaxtahækkanirnar 2021 voru bara upp á punt – þær síðustu of miklar
433Sport
Fyrir 3 klukkutímum

Fyrstu kaup Slot gætu orðið áhugaverð – Kostaði lítið fyrir ári en nú kostar hann tæpa 10 milljarða

Fyrstu kaup Slot gætu orðið áhugaverð – Kostaði lítið fyrir ári en nú kostar hann tæpa 10 milljarða
Fréttir
Fyrir 7 klukkutímum

Kári Hansen skilaði inn meðmælum til forseta Íslands rafrænt

Kári Hansen skilaði inn meðmælum til forseta Íslands rafrænt
Fókus
Fyrir 8 klukkutímum

Þurfti að læra að lifa upp á nýtt eftir maníu – „Það er partur af mér að vera með geðhvarfasýki og það er enginn dauðadómur, trúðu mér“

Þurfti að læra að lifa upp á nýtt eftir maníu – „Það er partur af mér að vera með geðhvarfasýki og það er enginn dauðadómur, trúðu mér“
433Sport
Fyrir 8 klukkutímum

Solskjær með áhugavert tilboð á borði sínu

Solskjær með áhugavert tilboð á borði sínu
Fréttir
Fyrir 9 klukkutímum

Viktor er óvænti forsetaframbjóðandinn: Safnaði 1.500 meðmælendum nánast í kyrrþey – Kostnaðurinn aðallega tími,bensín og sjoppusamlokur

Viktor er óvænti forsetaframbjóðandinn: Safnaði 1.500 meðmælendum nánast í kyrrþey – Kostnaðurinn aðallega tími,bensín og sjoppusamlokur