fbpx
Fimmtudagur 25.apríl 2024

Gjörningalistamaður rekinn út og eltur af starfsfólki Bláa lónsins

Johannes Paul Raether þurfti að hætta við síðasta hluta gjörnings síns

Kristján Guðjónsson
Þriðjudaginn 1. nóvember 2016 11:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Gjörningalistamaðurinn Johannes Paul Raether var rekinn úr afgreiðslu Bláa lónsins og eltur út af svæðinu þegar hann framkvæmdi gjörninginn Protekto.x.x. Absurd Alloy (5.5.5.4), sem var hluti af tón- og myndlistarhátíðinni Cycle á föstudag.

Um var að ræða hluta í gjörningaröð þar sem Johannes, í hlutverki tækninornarinnar Protecto x.x., heimsækir og rannsakar staði sem tengjast hinum ýmsum frum- og jarðefnum sem eru falin í þeim tækjum og tólum sem nútímamenn notast við dagsdaglega.

Heil rúta af áhorfendum elti Protekto x.x. í álverið í Straumsvík þar sem hópurinn fékk leiðsögn og því næst í Bláa lónið. Þar voru viðtökurnar ekki jafn vinalegur, en þegar listamaðurinn reyndi að næla sér í kísil úr lóninu var hann stöðvaður af starfsmanni. Því næst skoðaði listamaðurinn sig um í verslun Bláa lónsins en var þá vinsamlegast beðinn um að yfirgefa bygginguna – enda þyrfti leyfi fyrir slíkum uppákomum.

Næst ætlaði listamaðurinn að baða sig í litlum kísilfylltum polli utan baðsvæðis Bláa lónsins en neyddist til að hætta við eftir að öryggisvörður elti rútuna af svæðinu.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 6 klukkutímum

Stórstjarnan plataði alla með nýrri mynd: Margir voru áhyggjufullir – Sjáðu svakalegan mun

Stórstjarnan plataði alla með nýrri mynd: Margir voru áhyggjufullir – Sjáðu svakalegan mun
Fókus
Fyrir 6 klukkutímum

Fékk fyrsta ofsakvíðakastið árið 2021 – „Þetta er versta tilfinning sem ég hef upplifað“

Fékk fyrsta ofsakvíðakastið árið 2021 – „Þetta er versta tilfinning sem ég hef upplifað“
Fókus
Fyrir 8 klukkutímum

Endar Murk-Krissi á Bessastöðum?

Endar Murk-Krissi á Bessastöðum?
Fréttir
Fyrir 8 klukkutímum

Brim fjárfestir í nýjasta kælibúnaði frá KAPP

Brim fjárfestir í nýjasta kælibúnaði frá KAPP
Fókus
Fyrir 9 klukkutímum

Forsetaframbjóðandinn sem gerðist miðill – Hannes lætur efasemdaraddirnar sem vind um eyru þjóta

Forsetaframbjóðandinn sem gerðist miðill – Hannes lætur efasemdaraddirnar sem vind um eyru þjóta
433Sport
Fyrir 10 klukkutímum

Knattspyrnusambandið íhugar að banna félögum alfarið að gera þetta

Knattspyrnusambandið íhugar að banna félögum alfarið að gera þetta