Ágúst Ólafur Ágústsson, þingmaður Samfylkingarinnar, er í slæmum málum vegna hegðunar sinnar gagnvart Báru Huld Beck í sumar. Óvíst er hvort Ágúst Ólafur snúi aftur á þing, einkum og sér í ljósi þess að saga hans stangast á við frásögn Báru og að hann hafi tjáð stjórn flokksins að hann hafi fengið samþykki hjá Báru áður en hann sagði frá atvikinu á Facebook. Allt málið er athyglisvert í ljósi þess að Ágúst Ólafur hefur verið ötull talsmaður réttinda þolenda. Hann barðist fyrir því þegar hann sat á þingi árið 2006 að öll kynferðisbrot gegn börnum fyrndust ekki. Þegar hann sneri aftur á þing áratug síðar var hann meðflutningsmaður að frumvarpi um þörf á samþykki í kynferðisbrotamálum, þ.e.a.s. að það þurfi alltaf að fá samþykki áður en gengið er lengra í samskiptum kynjanna. Við sjáum svo hvað gerðist þegar Ágúst Ólafur fékk ekki samþykki.