fbpx
Föstudagur 26.apríl 2024
Fókus

Ótrúlegt myndband Arnars: Myndbrot frá hverjum einasta degi ársins 2016

Tók upp tveggja sekúndna myndband frá hverjum einasta degi

Björn Þorfinnsson
Þriðjudaginn 4. apríl 2017 16:45

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Frábært myndband Njarðvíkingsins Arnars Stefánssonar hefur vakið verðskuldaða athygli. Arnar tók upp myndbrot í tvær sekúndur hvern einasta dag ársins 2016 og setti brotin saman í eina heild. Atburðirnir sem rötuðu í myndbandið eru margskonar, allt frá fæðingu frumburðarins og að hversdagslegri hlutum eins og bíóferðum og ræktarferðum. Víkurfréttir fjölluðu fyrst um myndbandið skemmtilega sem gefur svo sannarlega skemmtilega innsýn inn í líf Íslendings.

Á viðtali við Víkurfréttir segir Arnar að hann hafi tekið upp nokkur myndbrot á hverju degi og því hafi verið strembið að velja aðeins eitt brot frá hverjum degi. Þetta er þó ekki í fyrsta sinn sem að Arnar geri slíkt myndband:

„„Mér fannst ekkert mál að deila þessu með fólki, ég var búinn að gera þetta einu sinni áður fyrir árið 2013 og þá var það aðeins meira mál að opna fyrir lífið mitt svona. Viðbrögðin sem ég fékk við myndbandinu þá gerði þetta einhvern vegin eðlilegra. Fólk ýmist sagði við mig að ég ætti fullkomið líf, sem ég leiðrétti á stundinni, og aðrir sögðu við mig að lífið mitt væri rosalega venjulegt. Svo er maður náttúrulega með það á bakvið eyrað að þetta sé að fara í birtingu, því reyni ég bara að taka ekki neitt vafasamt upp, þó svo að konunni finnist sum myndböndin af henni vera alveg á línunni,“ segir Arnar í samtali við Víkurfréttir.

Nánar má lesa um tilurð myndbandsinsá vef Víkurfrétta

Hér má horfa á myndbandið magnaða:

[youtube https://www.youtube.com/watch?v=qTWWTlSBS0w&w=560&h=315]

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 3 dögum

8 ára drengur með heilaæxli steig á svið – Sjáðu atriðið sem hreyfði við Simon Cowell

8 ára drengur með heilaæxli steig á svið – Sjáðu atriðið sem hreyfði við Simon Cowell
Fókus
Fyrir 3 dögum

J. Lo loksins laus við slottið – 7 ár í sölu og verðmiðinn lækkaður um milljónir

J. Lo loksins laus við slottið – 7 ár í sölu og verðmiðinn lækkaður um milljónir
Fókus
Fyrir 3 dögum

„Ég er í dag ekki vitund hrædd við dauðann. Það kom eftir þessa lífsreynslu.“

„Ég er í dag ekki vitund hrædd við dauðann. Það kom eftir þessa lífsreynslu.“
Fókus
Fyrir 3 dögum

Þetta var uppáhalds skyndibiti Elísabetar drottningar

Þetta var uppáhalds skyndibiti Elísabetar drottningar