fbpx
Föstudagur 26.apríl 2024
Fókus

Söng sig inn í hjörtu heimsbyggðarinnar úr sófanum heima: Ræddi við blaðamann DV

Kerrie-Ann Lomas, tveggja barna móðir frá Merseyside í Bretlandi, hefur vakið heimsathygli fyrir áreynslulausan söng þar sem hún syngur Listen eftir Beyoncé

Ritstjórn DV
Miðvikudaginn 8. mars 2017 16:39

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Mér finnst það ótrúlegt að myndskeið af mér, sem móðir mín tók upp, geti ferðast svona um heiminn líkt og raun ber vitni,“ segir Kerrie-Ann Lomas, 26 ára tveggja barna móðir í Bretlandi, sem skaust svo sannarlega upp á stjörnuhimininn í dag þegar breskir fjölmiðlar birtu myndskeið af Kerrie-Ann syngja í sófanum heima hjá sér.

Í myndskeiðinu sést hvar Kerrie-Ann situr sallaróleg í sófanum heima hjá sér ásamt dóttur sinni sem er þriggja ára gömul. Eftir örfáar sekúndur hefst undirspil Listen, lag sem Beyoncé gerði frægt og flestir eiga mjög erfitt með að syngja. En ekki Kerrie-Ann. Hún syngur lagið eins og hún hafi aldrei gert neitt annað og fyrir það hefur þessi „venjulega húsmóðir“, eins og hún lýsir sér sjálf, vakið verðskuldaða heimsathygli fyrir.

Kerrie-Ann hefur heldur betur slegið í gegn en hér er skjáskot úr myndskeiðinu sem hefur farið eins og eldur í sinu um veraldarvefinn.
Í sófanum Kerrie-Ann hefur heldur betur slegið í gegn en hér er skjáskot úr myndskeiðinu sem hefur farið eins og eldur í sinu um veraldarvefinn.

Blaðamaður DV ákvað að kanna hvort hægt væri að ná sambandi við þessa nýjustu stjörnu Bretlands en The Sun, Mirror, The Daily Mail og Liverpool Echo hafa öll birt viðtal við hana í dag. Kerrie-Ann var fljót að svara blaðamanni DV í gegnum samfélagsmiðilinn Facebook og þótti það ótrúlega skemmtilegt að heyra að myndskeiðið hafi borist alla leið til Íslands.

Ísbirnir og norðurljós

„Það fyrsta sem mig dettur í hug þegar ég hugsa um Ísland er snjór og ísbirnir,“ sagði Kerrie-Ann við blaðamann í dag.

„Mig hefur alltaf langað til að koma til Íslands og sjá stórbrotnu náttúruna og þessa fallegu staði sem ég hef heyrt af.“

Ég verð að svekkja þig samt. Hér eru engir ísbirnir.

„Haha, ég veit! Mig langar svo svakalega að sjá norðurljósin og get ekki beðið eftir því að koma í heimsókn!“

Kerrie-Ann segist hafa byrjað að syngja þegar hún var aðeins þriggja ára gömul. Hún hefur tvisvar sinnum reynt að komast í prufur fyrir X-Factor en ekki haft erindi sem erfiði.

„Ég hef aðeins sungið hérna heima hjá mér og hef ekki hlotið neina þjálfun í söng,“ segir Kerrie-Ann sem er orðlaus yfir þeirri athygli sem heimsbyggðin hefur sýnt myndskeiðinu sem nú nálgast milljón áhorf á Facebook.

Athyglin yfirþyrmandi

„Athyglin var og er yfirþyrmandi. Við erum ekki bara að tala um Bretland heldur hefur myndskeiðið farið út um allan heim. Ég var ekki alveg undirbúin undir það. Að sjálfsögðu fylgir þessu neikvæð athygli líka en það á reyndar við um hvað sem þú gerir. Ef ég væri til dæmis myndlistarkona þá gefur það augaleið að það koma ekki allir til með að elska verkin mín. Þetta er ekkert öðruvísi. Ég get ekki þóknast öllum, alltaf. En ef ég fæ einhvern einn til þess að líða betur þá vegur það þyngra en nokkur neikvæð gagnrýni.“

En hvert mun þetta ævintýri leiða þig? Hefuru hugmynd um það?

„Nei, ég hef enga hugmynd! Ég hef aldrei reynt að leggja söng fyrir mig í atvinnuskyni þar sem börnin mín tvö eru í algjörum forgangi hjá mér. Ég mun samt halda áfram að setja inn myndskeið inn á Facebook-síðuna mína og mögulega skipuleggja tónleika hér heima,“ segir Kerrie-Ann og biður að lokum að heilsa öllum á Íslandi. Hægt er að fylgjast með nýjustu myndskeiðum Kerrie-Ann á nýrri Facebook-síðu sem hún bjó til með því að smella hér!

Myndskeiðið af Kerrie-Ann syngja Listen!

[youtube https://www.youtube.com/watch?v=1p25S5xzwww&w=560&h=315]

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 3 dögum

8 ára drengur með heilaæxli steig á svið – Sjáðu atriðið sem hreyfði við Simon Cowell

8 ára drengur með heilaæxli steig á svið – Sjáðu atriðið sem hreyfði við Simon Cowell
Fókus
Fyrir 3 dögum

J. Lo loksins laus við slottið – 7 ár í sölu og verðmiðinn lækkaður um milljónir

J. Lo loksins laus við slottið – 7 ár í sölu og verðmiðinn lækkaður um milljónir
Fókus
Fyrir 3 dögum

„Ég er í dag ekki vitund hrædd við dauðann. Það kom eftir þessa lífsreynslu.“

„Ég er í dag ekki vitund hrædd við dauðann. Það kom eftir þessa lífsreynslu.“
Fókus
Fyrir 3 dögum

Þetta var uppáhalds skyndibiti Elísabetar drottningar

Þetta var uppáhalds skyndibiti Elísabetar drottningar