fbpx
Föstudagur 26.apríl 2024

Birgir gaf jólagjöfina sem hann fékk frá lögreglunni: Ástæðan hefur brætt mörg hjörtu

„Mikið mættum við fara að hugsa eins og hann,“ segir Ragnar um góðverk Birgis

Einar Þór Sigurðsson
Miðvikudaginn 20. desember 2017 23:40

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Það tíðkast gjarnan hjá fyrirtækjum og stofnunum að gefa starfsmönnum sínum smá jólagjöf. Mér finnst það fallega gert og er sannfærður um slíkt skilar sér til baka til fyrirtækissins í jákvæðara og betra starfsfólki. Við hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu fengum líka gjöf þetta árið. Það var þessi fína matarkarfa og er ég að sjálfsögðu afskaplega þakklátur fyrir það.“

Svona hefst pistill frá Birgi Erni Guðjónssyni, Bigga löggu, sem hann skrifar á Facebook-síðu sína. Óhætt er að segja að frásögn Bigga af góðverki hans hafi brætt mörg hjörtu.

Þakklátur fyrir það sem maður hefur

Í færslu sinni segir Biggi að lögreglustarfið sé þess eðlis að lögreglumenn kynnist öllum hliðum samfélagsins. Starfið sé gott að því leytinu að það gefi manni þá gjöf að vera þakklátur fyrir það sem maður hefur.

„Það eru nefninlega svo margir sem hafa það ekki jafn gott og maður sjálfur. Í þetta sinn ákvað ég því, í samráði við eiginkonuna, að gefa gjöfina sem ég hafði fengið frá lögreglunni áfram út í samfélagið.“

„Þá kom litli stubburinn sem hafði tekið á móti mér á stigaganginum, hlaupandi aftur út úr einu herberginu til mín og kallaði núna „knúús!“

Birgir segist hafa óskað eftir aðstoð við að finna einhvern sem þyrfti hugsanlega meira á gjöfinni að halda en hann. Hann bætir við að ekki hafi tekið langan tíma að finna þann einstakling – og í gær kíkti hann svo í heimsókn til viðkomandi.

„Svo tiplaði á móti mér lítill stubbur“

„Ég var í vinnunni þegar ég fór með pakkann. Umrædd fjölskylda býr í blokk og þegar ég var að ganga upp stigann heyrði ég litla rödd kalla á móti „hver er!“. Svo tiplaði á móti mér lítill stubbur sem snéri auðvitað við á punktinum þegar hann sá að þetta var löggan. Hann átti væntanlega ekki von á henni í heimsókn,“ segir Biggi sem bætir við að það hafi líka smá furðusvipur komið á móðurina þegar hún sá hann með stóran kassa sem hann nefndi að væri ætlaður henni.

„Ég veit ekki hvað hún hefur haldið. Á bak við hana voru fleiri forvitin lítil andlit sem vildu ólm kíkja í kassann. Eftir nokkur stór augu innilegar þakkir kvaddi ég þessa fallegu fjölskyldu. Þá kom litli stubburinn sem hafði tekið á móti mér á stigaganginum, hlaupandi aftur út úr einu herberginu til mín og kallaði núna „knúús!“. Hann gaf mér svo þéttingsfast knús og við óskuðum hvor öðrum gleðilegra jóla.“

Hverrar krónu virði

Síðar um daginn fékk Biggi svo skilaboð á Facebook frá konunni sem hann hafði fært gjöfina. Í skilaboðunum stóð:

„Sæll kæri Biggi
Ég er búin að sitja og hugsa hvað ég geti sagt eða gert til að sýna þakklæti fyrir þessa æðislegu gjöf frá þér. Ekki bara fáum ég og börnin mín æðislegan jólamat heldur róar þetta kvíða minn fyrir jólunum um meira en helming ! Eina sem ég get sagt er takk !! Vona að þú og þín fjölskylda munið eiga gleðileg jól“

„Hvað getur maður sagt? Þessi orð, svo ekki sé talað um knúsið, voru miklu dýrmætari gjöf handa mér en sú sem ég gaf þeim,“ segir Birgir og bætir við að gaman sé að fá gjafir. Hann geti þó sagt það með sanni að þessi gjöf frá lögreglunni þetta árið sé sú allra besta sem hann hafi nokkurntíma fengið frá nokkru fyrirtæki.

„Hún var svo sannarlega hverrar krónu virði og miklu meira en það. Þetta sem ég gerði kostaði sjálfan mig ekki krónu og þess vegna snýst þetta nákvæmlega ekkert um að ég sé eitthvað góður eða eitthvað slíkt. Alls ekki! Þetta kallast bara skynsamleg ávöxtun og ekkert annað. Mér fannst móttökurnar bara svo fallegar að mig langaði til að deila þeirri jólasögu með ykkkur.“

Hugsum um hvert annað

Biggi bendir svo að lokum á að hann hafi fengið ábendingar um að þau hjá Draumasetrinu á Héðinsgötu 10 vanti mat fyrir jólin.

„Draumasetrið er áfangaheimili með fjöritíu íbúum sem hafa átt við áfengis- eða vímuefnavanda að etja. Þarna er unnið frábært starf þar sem lífum er bjargað og fólki er hjálpað að koma undir sig fótunum á ný. Ef þú átt eitthvað til að gefa eða hefur jafnvel fengið jólagjöf frá þínu fyritæki sem þig langar til að ávaxta þá getur þú svo sannarlega gert það með því að gefa gjöfina áfram þangað.
Hugsum um hvert annað. Þannig samfélag er gott samfélag. Þannig eru jólin.“

„Takk Biggi fyrir að vekja athygli á þessu góðverki þínu og hrífa okkur með í að gera það sama,“ segir Ragnar.
Gerir eins „Takk Biggi fyrir að vekja athygli á þessu góðverki þínu og hrífa okkur með í að gera það sama,“ segir Ragnar.

Mynd: DV ehf / Sigtryggur Ari

Ragnar ætlar að gera eins

Sem fyrr segir hafa margir hrósað Birgi fyrir góðverkið. Einn þeirra er Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR og vinur Birgis, sem deildi færslu hans. Hann segir að hann og fjölskylda hans ætli að feta í fótspor Birgis og gefa sínar jólagjafir áfram. Hann segir á Facebook:

„Vinur minn og öðlingurinn Birgir Örn Guðjónsson eða Biggi lögga eins og við þekkjum hann flest gaf sína jólagjöf, sem var fullur kassi af jólamat, til fjölskyldu sem þurfti meira á því að halda en hann. Þetta kemur svo sem ekki á óvart þegar Biggi á í hlut en mikið mættum við fara að hugsa eins og hann. Við fjölskyldan höfum því ákveðið að gefa okkar Jólagjafir áfram, sem samanstendur af konfekti og gjafakorti sem hægt er að versla gjafir eða jólamat fyrir, áfram til fjölskyldu sem við þekkjum til og þarf miklu meira á þessu að halda en við. Takk Biggi fyrir að vekja athygli á þessu góðverki þínu og hrífa okkur með í að gera það sama.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 2 klukkutímum

Tók mynd af sér með nýfæddum syninum en það var mamman í bakgrunninum sem stal senunni

Tók mynd af sér með nýfæddum syninum en það var mamman í bakgrunninum sem stal senunni
433Sport
Fyrir 2 klukkutímum

Allt vitlaust um borð í flugvél – Lét yfirmann sinn heyra það vegna sæta á fyrsta farrými sem ungir menn voru í

Allt vitlaust um borð í flugvél – Lét yfirmann sinn heyra það vegna sæta á fyrsta farrými sem ungir menn voru í
Fókus
Fyrir 4 klukkutímum

Segja þessa fæðu ekkert hafa með íslenska karlmennsku að gera – „Ertu maður eða mús?“

Segja þessa fæðu ekkert hafa með íslenska karlmennsku að gera – „Ertu maður eða mús?“
433Sport
Fyrir 4 klukkutímum

Stjarna United frumsýndi nýja kærustu – Vann áður á McDonald’s

Stjarna United frumsýndi nýja kærustu – Vann áður á McDonald’s
Fréttir
Fyrir 6 klukkutímum

Lögregla kölluð út vegna tjaldbúða í miðborginni

Lögregla kölluð út vegna tjaldbúða í miðborginni
Fréttir
Fyrir 6 klukkutímum

Fordæmalaus staða gæti komið upp á gosstöðvunum á Reykjanesskaga – „Þetta er fyrsta skiptið sem við sjáum svona“

Fordæmalaus staða gæti komið upp á gosstöðvunum á Reykjanesskaga – „Þetta er fyrsta skiptið sem við sjáum svona“
433Sport
Fyrir 14 klukkutímum

Betri en bæði Lampard og Gerrard – ,,Númer eitt fyrir mér“

Betri en bæði Lampard og Gerrard – ,,Númer eitt fyrir mér“
Fókus
Fyrir 14 klukkutímum

Svona eiga þau saman – Ekki aðeins æðislegir elskhugar heldur líka mjög góðir vinir

Svona eiga þau saman – Ekki aðeins æðislegir elskhugar heldur líka mjög góðir vinir