Á morgun frá klukkan 12 verður í Máli og menningu kynning á málefnum Blindravinafélagsins vegna heimildarmyndar Karl Berndsen um aðgengi sjónskertra. Bókin VAX-IN ásamt disk verður til sölu en ágóðinn rennur beint til þess að klára heimildarmynd um aðgengi Sjónskertra og blindra.
„Hugmyndavinnan byggist að öllu leyti á minni reynslu eftir að ég varð lögblindur Gagna- og efnisöflunin er mikil og aðaláhersla lögð á aðgengi Þeirra sem eru sjónskertir og blindir,“ segir Karl Berndsen.
Þá segir Karl enn fremur:
„Nafn bókarinnar VAXI-n held ég að sé ein snilldarlegasta uppfinning okkar og komi til með að vera mikilvægur þáttur í lífi hverrar konu, þegar hún uppgötvar mátt bókarinnar. Í bókinni notum við mikið af ljósmyndum af íslenskum og erlendum stjörnum og síðan fékk ég Laufeyju Jónsdóttur til þess að teikna skýringarmyndir sem gera bókina tímalausa og er ég mjög stoltur af hennar vinnu.“
Aðspurður fyrir hverja bókin sé segir Karl að hún sé fyrir konur á öllum aldri sem vilji læra að klæða sig eftir vexti og draga fram það jákvæða í stað þess að vera að fela hið neikvæða.
„Hún er líka kjörin fyrir eiginmenn og elskhuga að gefa elskunum sínum, því allir vilja þeir hafa vel klæddar og hamingjusamar konur sér við hlið. Bókinni er ætlað að styrkja sjálfsmynd kvenna því hún gegnir lykilhlutverki þegar kemur að góðu útliti.“