Spenna myndaðist í uppboðssalnum þegar hún gekk í salinn ásamt Baltasar Kormáki
„Brúnn hestur“, fræg hestamynd eftir Lousiu Matthíasdóttur var slegin Lilju Pálmadóttur á uppboði hjá Gallerí Fold í gærkveldi. Myndin var metin á 7-9 milljónir króna fyrir uppboðið. Í samtali við mbl.is sagði Tryggi Páll Tryggvason, listmunasali Gallerí Foldar, að verðið væri „óvenjulega hátt vegna þess að þetta er óvenjulega stór og mikil mynd. Miðað við aðrar sem við höfum selt þá er þetta ekkert of hátt verðmat,“ sagði Tryggvi Páll. Verkið er 137×152 cm á stærð. Í frétt mbl.is er haft eftir Tryggva að hesta- og náttúrulífsmyndir fari yfirleitt á mjög háu verði og þá séu verk eftir Louisu afar eftirsótt.
Fjölmiðlamaðurinn Eiríkur Jónsson greindi frá því á fréttasíðu sinni að spenna hefði myndast í uppboðssalnum þegar Lilja og eiginmaður hennar, Baltasar Kormákur, hafi gengið inn í salinn undir lok uppboðsins þegar aðeins átti eftir að selja dýrustu verkin. Heimildir Eiríks herma að Lilja hafi boðið grimmt í verkið ásamt öðrum kaupanda. Að endingu var myndin slegin Lilju á sjö milljónir króna.