fbpx
Föstudagur 26.apríl 2024

Sögur: Skemmtilegasta verðlaunahátíð landsins fer fram í kvöld

Ragna Gestsdóttir
Sunnudaginn 22. apríl 2018 15:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Í kvöld er ærið tilefni til að fagna því þá munu íslensk börn verðlauna börn allt það sem þeim finnst standa upp úr í menningarlífinu. Þetta er verðlaunahátíð eins og börn vilja sjá hana, fyndin og fjörug – og langar ræður eru stranglega bannaðar.

Á Sögum verða börnin verðlaunuð fyrir verk sín og einnig fullorðnir sem vinna að barnamenningu. Það eru börn á aldrinum 6-12 ára sem sjá um val á verðlaunaverkum fullorðinna.

Verðlaun verða veitt fyrir tónlist, leiklist, sjónvarp og síðast en ekki síst barnabókmenntir. Krakkar á aldrinum 6-12 ára um allt land hafa kosið sitt uppáhald og þau ráða! Á hátíðinni verður einnig afhentur Sögusteinninn, heiðursverðlaun IBBY, auk þess sem ungir rithöfundar, leikskáld og kvikmyndagerðarmenn hljóta verðlaun.

Verðlaunahátíðin sem er í anda Kids’ Choice Awards fer fram í Eldborgarsal Hörpu og hefst kl. 19.30. Frítt er inn á hátíðina en gestir þurfa að sækja sér miða á harpa.is.

Stefnt er að því að gera hátíðina að árvissum viðburði og segja aðstandendur hennar hana setta á sama stall og Eddu- og Grímuverðlaunin.

Hátíðin verður sýnd í beinni útsendingu á RÚV. Að henni standa SÖGUR – samtök um barnamenningu í samstarfi við KrakkaRÚV, SÍUNG, IBBY á Íslandi, Barnamenningarhátíð, Reykjavík bókmenntaborg UNESCO, Borgarbókasafnið, Borgarleikhúsið, Menntamálastofnun, Skóla- og frístundasvið Reykjavíkur og Miðstöð skólaþróunar við HA.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 6 klukkutímum

Dularfullur hlutur hrapað úr geimnum og lenti á húsi í Flórída

Dularfullur hlutur hrapað úr geimnum og lenti á húsi í Flórída
433Sport
Fyrir 12 klukkutímum

Betri en bæði Lampard og Gerrard – ,,Númer eitt fyrir mér“

Betri en bæði Lampard og Gerrard – ,,Númer eitt fyrir mér“
433Sport
Fyrir 14 klukkutímum

Chelsea væri í fallsæti án Palmer

Chelsea væri í fallsæti án Palmer
433Sport
Fyrir 15 klukkutímum

Slot staðfestir viðræður við Liverpool

Slot staðfestir viðræður við Liverpool
EyjanFastir pennar
Fyrir 16 klukkutímum

Jón Sigurður skrifar: Eiga ekki saman Jón og Júróvisjón

Jón Sigurður skrifar: Eiga ekki saman Jón og Júróvisjón
433Sport
Fyrir 16 klukkutímum

Byrjunarlið Brighton og Manchester City – Enginn Haaland

Byrjunarlið Brighton og Manchester City – Enginn Haaland