Hinn 96 ára gamli Allan Scott fékk að fara aftur um borð í Spitfire-orrustuflugvél af tilefni af 100 ára afmæli breska flughersins. Scott skaut niður tugi flugvéla nasista í Seinni heimstyrjöldinni og tókst að lifa af hundruð flugferða þegar hann var hluti af 603 Sveitinni á Möltu.
Um helgina hélt breski flugherinn upp á hundrað ára afmæli sitt og fékk því Scott að sitja í farþegasætinu á 2 manna Spitfire-vél líkt og sjá má í myndbandi Daily Telegraph hér fyrir neðan: