Bókin sem ég er að lesa er Tvísaga eftir Ásdísi Höllu Bragadóttur. Tvísaga er í raun fjölskyldusaga móður Ásdísar og hennar sjálfrar sem fléttast saman í hreint út sagt magnaða heild. Ég er komin langleiðina með bókina og finnst hún stórkostleg. Ásdísi tekst svo vel að segja frá dramatísku lífshlaupi fjölskyldunnar á einlægan hátt. Ég mæli með því að allir bókaunnendur lesi þessa bók, því hún skilur svo sannarlega mikið eftir sig. 5 stjörnur hvorki meira né minna!