fbpx
Föstudagur 26.apríl 2024
Fókus

Svava og Hermann eru glæsilegt par

Ragna Gestsdóttir
Laugardaginn 2. febrúar 2019 09:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Hin ljúfa Svava Gunnarsdóttir er gengin út, en Svava heldur úti hinu vinsæla matarbloggi Ljúfmeti og lekkerheit, auk þess að starfa á lögmannsstofunni LEX.

Hinn heppni er Hermann Guðmundsson forstjóri og einn eigenda heildsölufyrirtækisins Kemi, auk þess sem hann situr í stjórnum nokkurra einkahlutafélaga. Hermann hefur komið víða við í viðskiptalífinu, hann var forstjóri N1 á árunum 2006-2012 og hefur meðal annars setið í stjórnum Samtaka atvinnulífsins, Samtaka verslunar og þjónustu, Klaks hf. og Rannsóknarseturs verslunarinnar. Hann var viðskiptafélagi Bjarna Benediktssonar, núverandi fjármálaráðherra, og fjölskyldu hans um árabil og til dæmis lykilmaður í kaupum Engeyinga og fleiri fjárfesta á Olíufélaginu árið 2006 sem síðar fékk nafnið N1.

Svava hóf störf á LEX árið 2006 sem aðstoðarmaður lögmanna, en hún er mannfræðingur og félagsfræðingur að mennt.

Svava stofnaði bloggið heima í stofusófanum sumarið 2012 og segir hún á heimasíðu sinni að það hafi stækkað hraðar hana hefði nokkurn tímann órað fyrir. „Mig hefði aldrei grunað hvað bloggið ætti eftir að veita mér mikla gleði og verða stór hluti af lífi mínu.“

Svava var áður með tónlistarmanninum Örlygi Smára og eiga þau saman þrjú börn.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Í gær

„Ég ætla ekki að ljúga því að ég hafi verið dýrlingur, en ég var ekki nógu heimskur til að eyðileggja fjölskylduna okkar“

„Ég ætla ekki að ljúga því að ég hafi verið dýrlingur, en ég var ekki nógu heimskur til að eyðileggja fjölskylduna okkar“
Fókus
Fyrir 2 dögum

„Ég var kominn á stað þar sem ég vissi að ég myndi valda mér miklum skaða ef ég myndi ekki taka í taumana“

„Ég var kominn á stað þar sem ég vissi að ég myndi valda mér miklum skaða ef ég myndi ekki taka í taumana“
Fókus
Fyrir 3 dögum

Segir að meðlimur bresku konungsfjölskyldunnar hafi boðið henni í kynsvall

Segir að meðlimur bresku konungsfjölskyldunnar hafi boðið henni í kynsvall
Fókus
Fyrir 3 dögum

Sjáðu paratattú Kleina og Hafdísar sem eru hjá því allra heilagasta

Sjáðu paratattú Kleina og Hafdísar sem eru hjá því allra heilagasta