fbpx
Föstudagur 26.apríl 2024
Fókus

Menningarverðlaun DV 2017: Tilnefningar í fræðiritum

Fókus
Laugardaginn 29. september 2018 18:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Menningarverðlaun DV fyrir árið 2017 verða afhent við hátíðlega athöfn föstudaginn 5. október klukkan 16:30 í nýjum og glæsilegum höfuðstöðvum DV að Suðurlandsbraut 14. Í ár verða veitt verðlaun í sjö flokkum; kvikmyndum, leiklist, tónlist, myndlist, bókmenntum, fræðum og stafrænni miðlun auk þess sem veitt eru sérstök heiðursverðlaun.

Þá verða lesendaverðlaun dv.is veitt en þar munu lesendur dv.is fá tækifæri til þess að kjósa það verk, listamann eða höfund sem þeim líst best á. Þriðjudaginn 2. október hefst netkosning á dv.is sem stendur til miðnættis 4. október. Sú tilnefning sem hlýtur flest atkvæði í netkosningunni hreppir lesendaverðlaun dv.is.

Hér má sjá tilnefningarnar og skipan dómnefndar í flokki fræðirita. Á næstu dögum verða birt á vef dv.is tilnefningar í öllum þeim flokkum sem veitt verða verðlaun fyrir.

Steinunn Kristjánsdóttir

Leitin að klaustrunum eftir Steinunni Kristjánsdóttur er glæsilegt verk þar sem gerð er ítarleg grein fyrir rannsóknum höfundar og aðstoðarmanna hennar á sviði fornleifafræði. Auk lýsinga á vettvangi er vísað til fjölda tiltækra heimilda. Bókin er skrifuð á skýru og aðgengilegu máli og bregður upp lifandi myndum, bæði af sögu klausturhalds á Íslandi og af starfi fornleifafræðinga. Mjög er vandað til útgáfunnar sem prýdd er fjölda mynda, teikninga og korta. Útgefandi: Sögufélag, í samvinnu við Þjóðminjasafn Íslands.

Guðjón Friðriksson

Litbrigði húsanna. Saga Minjaverndar og endurgerðra bygginga um allt land eftir Guðjón Friðriksson.

Í Litbrigðum húsanna rekur Guðjón Friðriksson sögu Minjaverndar og ítarlega sögu marga þekktra húsa á Íslandi, íbúasögu þeirra, hnignunarsögu, baráttu fyrir verndun þeirra og loks endurgerð. Litbrigði húsanna er ekki einungis saga um byggingar, heldur einnig saga um samfélag og fólkið sem byggir það. Verkið er ákaflega fallegur gripur og munar þar ekki síst um þátt Snorra Freys Hilmarssonar sem annast myndaval en bókin er prýdd fjölmörgum ljósmyndum og teikningum sem ásamt texta Guðjóns gera sögu húsanna lifandi og spennandi. Útgefandi: Mál og menning.

Sverrir Tómasson

Pipraðir páfuglar eftir Sverri Tómasson

Í Pipruðum páfuglum fjallar Sverrir Tómasson á fróðlegan og glettinn hátt um mataræði, borðsiði og eldamennsku Íslendinga á miðöldum, eins og slíku er lýst í miðaldahandritum. Byggt er á fjölmörgum heimildum, bæði frumheimildum og síðari tíma fræðiritum og höfundur eykur mjög skemmtigildi bókarinnar með vísunum í bókmenntatexta og þjóðsögur. Pipraðir páfuglar er fallega hönnuð bók með fjölda litprentaðra mynda úr miðaldahandritum og rúsínan í pylsuendanum eru 23 uppskriftir af herramannsmat frá Reykhólum. Útgefandi: Hið íslenska bókmenntafélag.

Vilhelm Vilhelmsson

Sjálfstætt fólk. Vistarband og íslenskt samfélag á 19. öld eftir Vilhelm Vilhelmsson

Sjálfstætt fólk er fróðlegt og aðgengilegt verk um vistarbandið og líf alþýðunnar á 19. öld. Höfundurinn Vilhelm Vilhelmsson setur margslungið samband undirsáta og yfirboðara, andóf, átök og möguleika í fræðilegt samhengi. Hann varpar nýju og nokkuð bjartara ljósi á vistarbandið og sýnir fram á hvernig það þjónaði margvíslegum samfélagslegum tilgangi og var hluti af menningu og stjórnskipulagi Norður-Evrópu. Víða er leitað fanga í þessu viðamikla verki og útgáfan öll hin vandaðasta. Útgefandi: Sögufélag.

Íris Ellenberger
Ásta Kristín Benediktsdóttir og Hafdís Erla Hafsteinsdóttir

Svo veistu að þú varst ekki hér. Hinsegin sagnfræði og hinsegin saga á Íslandi, ritstjórar Íris Ellenberger, Ásta Kristín Benediktsdóttir og Hafdís Erla Hafsteinsdóttir

Svo veistu að þú varst ekki hér er fræðirit um sögu hinsegin fólks á Íslandi, hið fyrsta sinnar tegundar og er því um tímamótaverk að ræða. Í bókinni er að finna sex ritrýndar greinar eftir jafnmarga höfunda sem hver á sinn hátt varpar ljósi á sögu hinsegin fólks, orðræðu um hinsegin fólk og hinsegin fræði sem nálgun á sögu og samfélag. Verkið er þarft og mikilvægt innlegg í umræðu samtímans. Auk ritstjóranna eiga Þorsteinn Vilhjálmsson, Þorvaldur Kristinsson og Kristín Svava Tómasdóttir greinar í bókinni. Útgefandi: Sögufélag.

Í dómnefndinni voru: Árni Matthíasson, Hildigunnur Þráinsdóttir og Soffía Auður Birgisdóttir.

 

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Í gær

Margrét Friðriks tekur upp nýtt nafn – „Finnst það koma með ferskan blæ inn ì mitt líf“

Margrét Friðriks tekur upp nýtt nafn – „Finnst það koma með ferskan blæ inn ì mitt líf“
Fókus
Í gær

Þjáningar Sævars – Nýtt lag og fjársöfnun

Þjáningar Sævars – Nýtt lag og fjársöfnun
Fókus
Fyrir 3 dögum

Aðdáendur fá innsýn í ástarlíf Taylor Swift á nýrri plötu – Það kom þó á óvart hvaða maður er þar í aðalhlutverki

Aðdáendur fá innsýn í ástarlíf Taylor Swift á nýrri plötu – Það kom þó á óvart hvaða maður er þar í aðalhlutverki
Fókus
Fyrir 3 dögum

Hún segir þetta vera „náttúrulegt Ozempic“ og margir eiga það nú þegar í eldhússkápnum

Hún segir þetta vera „náttúrulegt Ozempic“ og margir eiga það nú þegar í eldhússkápnum