fbpx
Föstudagur 26.apríl 2024
Fókus

Heiðdís Rós skrifaði niður lýsingu á draumaprins og ellefu dögum síðar birtist hann: „Þetta var ást við fyrstu sýn“

Óðinn Svan Óðinsson
Miðvikudaginn 26. september 2018 10:07

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Þetta var ást við fyrstu sýn,“ segir Heiðdís Rós Reynisdóttir eða Heiðdís Rós Celebrity MUA eins og hún kallar sig í samtali við DV en Heiðdís sem er förðunarfræðingur og áhrifavaldur hefur fundið ástina í Los Angeles. Sá heppni heitir Fazard og er rúmlega þrítugur viðskiptamaður.

Þúsundir Íslendinga hafa fylgist með lífi Heiðdísar á samfélagsmiðlum undanfarin ár en þar gefur hún fylgjendum sínum tækifæri til að fylgjast náið með lífi sínu. Hún kynnti fylgjendum sínum fyrir Fazard Sepahifar fyrr í þessum mánuði en hún segir hlutina hafa gerst hratt eftir að hún hitti Fazard.

„Þann 3. september settist ég niður og skrifaði lýsingu á drauma manni. Ellefu dögum síðar fór ég á stefnumót með Fazard og segja má að þetta hafi verið ást við fyrstu sýn,“ segir Heiðdís í samtali við DV og bætir þeirri staðreynd við að ellefu sé hennar happatala.

Hún segir þau Fazard hafa smollið strax saman og að lífið sé dásamlegt. „Við erum ekki búin að vera aðskilin síðan við hittumst fyrst. Við erum með sama persónuleika og ég held að ef ég væri karlmaður þá væri hann klón af mér,“ segir Heiðdís.

Fazard er fæddur árið 1987 og var um tíma í læknanámi að sögn Heiðdísar en í dag er hann viðskiptamaður. Heiðdís segir þau Fazard ætla taka einn dag í einu. „Við erum bæði businessfólk og ætlum örugglega að stofna fyrirtæki saman.“ Aðspurð um hvernig fyrirtæki þau Fazard hyggist stofna vill Heiðdís lítið tjá sig. „Ég get ekki talað um það núna en við erum í allskonar verkefnum.“

Eins og áður segir er Heiðdís virk á samfélgasmiðlum en hér að neðan má sjá nokkrar myndir frá ævintýrum hennar í Los Angeles.

Partý í Miami

https://www.instagram.com/p/Bg2LgI8js82/?taken-by=hrosmakeup

Heiðdís og Fazard

https://www.instagram.com/p/BoD23sjA5DR/?taken-by=hrosmakeup

Förðun á föstudegi

https://www.instagram.com/p/BleXBQIAfeW/?taken-by=hrosmakeup

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 3 dögum

Uppnám á tónleikum Laufeyjar – Hundruð falsaðra miða í umferð og sviknir aðdáendur grétu

Uppnám á tónleikum Laufeyjar – Hundruð falsaðra miða í umferð og sviknir aðdáendur grétu
Fókus
Fyrir 3 dögum

8 ára drengur með heilaæxli steig á svið – Sjáðu atriðið sem hreyfði við Simon Cowell

8 ára drengur með heilaæxli steig á svið – Sjáðu atriðið sem hreyfði við Simon Cowell
Fókus
Fyrir 3 dögum

Hún segir þetta vera „náttúrulegt Ozempic“ og margir eiga það nú þegar í eldhússkápnum

Hún segir þetta vera „náttúrulegt Ozempic“ og margir eiga það nú þegar í eldhússkápnum
Fókus
Fyrir 3 dögum

„Ég er í dag ekki vitund hrædd við dauðann. Það kom eftir þessa lífsreynslu.“

„Ég er í dag ekki vitund hrædd við dauðann. Það kom eftir þessa lífsreynslu.“