Brask og Brall er ein stærsta íslenska Facebook-síðan en þar geta notendur auglýst eða óskað eftir vörum eða þjónustu til sölu. Félagatalið telur tæplega 124 þúsund manns og auglýsingarnar og fyrirspurnirnar því fjölmargar á degi hverjum.
Ein þeirra kom einmitt í morgun frá konu sem heitir Katrín en hún hafði lent í vandræðum með þvottavélina sína. Katrín setti inn auglýsingu og óskaði eftir pípara eða laghentum einstaklingi. Það er þó ekki bónin sem vekur athygli heldur launin. Því fyrir þann aðila sem tekst að laga þvottavélina fæst flaska af sterku áfengi.
Viðbrögðin létu ekki á sér standa og eftir aðeins nokkrar mínútur höfðu notendur á síðunni boðið fram aðstoð sína. Sjáðu auglýsinguna hér að neðan.