fbpx
Föstudagur 26.apríl 2024
Fókus

KÍA Gullhringurinn 2018

Kynning
Ágúst Borgþór Sverrisson
Sunnudaginn 22. apríl 2018 09:00

George Hincapie

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Einhver mesti hjólreiðakappi heims, George Hincapie, verður heiðursgestur KIA Gullhringsins í sumar. Enginn maður í heiminum hefur hjólað í fleiri Tour De France keppnum og aðeins einn annar hefur verið jafn oft í sigurliði Tour De France.

Margir af gömlu liðsfélögum og mótherjum George gera sér ferð hingað og keppa í mótinu og eru goðsagnir eins og Þjóðverjinn Erik Zabel, Bobby Julich og Christian Vande Velde meðal keppenda.

Þetta er ekki í fyrsta sinn sem George kemur til Íslands en sumarið 2015 hjólaði hann í WOW Cyclothon að frumkvæði Þorvaldar Daníelssonar.

Endurbætur gerðar á keppninni

Mótshaldarar KIA Gullhringsins hafa síðan í haust unnið að endurskoðun keppninnar vegna slysa sem urðu í henni í fyrra. Fundað hefur verið með Lögreglunni á Suðurlandi og Vegagerðinni í Reykjavík og á Suðurlandi síðan í september um hvernig efla megi öryggi keppenda. Hugsanleg lokun fyrir bílaumferð á þeim stutta tíma sem keppendur fara um svæðið hefur verið til skoðunar. Vel hefur verið tekið í allar hugmyndir mótshaldara og gagnlegar ábendingar einnig komið frá þessum aðilum.

Ræsingartími færður og lokun á umferð
Ræsingartími mótsins verður verið færður til 19.00 í stað 18.00 til þess að gera lokun brautarinnar auðveldari í framkvæmd. Þá er umferð um svæðið enn umfangsminni. Sérstakur öryggisstjóri hefur verið fenginn inn í teymið sem mun samhæfa vinnu Björgunarsveita, viðbragðsteymis, lögreglu og Vegagerðar svo allt sé á einni hendi. Einnig verður gæsla efld enn meira bæði innan og utan brautar. Mótshaldarar hafa samið við Lögregluna á Suðurlandi um þjónustu þriggja lögreglubíla sem munu fylgja keppninni og vinna með keppninni í kringum lokanir. Kemur þetta til viðbótar við allt annað viðbragðsteymi sem við höfum verið með. Þá munum við bæta við brautarbílum og gera fleiri öryggisráðstafanir.

Óháður sérfræðingur í umferðaröryggi ráðinn
Ólafur Kr. Guðmundsson hefur verið fenginn til þess að vinna öryggisúttekt á keppnisbrautum KIA Gullhringsins í komandi keppni næsta sumar. Ólafur er helsti sérfræðingur landsins í umferðaröryggi. Hann er varaformaður FÍB og fulltrúi EuroRAP (European Road Assessment Programme) en verkefni þess er að kortleggja vegi og ástand þeirra út frá öryggissjónarmiðum.

Ólafur mun vinna þá úttekt mánuði fyrir keppni og munu mótshaldarar birta þá skýrslu á heimasíðu keppninnar og vinna að öryggisúrbótum með viðeigandi aðilum fram að keppni. Önnur úttekt verður svo unninn síðasta sólarhringinn fyrir keppni en þá verður ljóst hvaða svæði verða orðin örugg og hvaða svæði verða metin sem sérstök öryggis áhættusvæði og séð til þess að þau verði merkt sem slík og athygli keppenda vakin á því.

Innri öryggisstjóri skipaður í teymið

Þá hefur Þórir Erlingsson verið skipaður öryggisstjóri KIA Gullhringsins. Þórir er með meistaragráðu í alþjóðlegri ferðaþjónustu frá Háskólanum í Suður-Karólínu. Hann kennir ferðaþjónustustjórnun við Háskólann á Hólum. Þórir rak um tíma fyrirtæki sem sérhæfði sig í öryggis- og forvarnarlausnum og vörum fyrir heimili og fyrirtæki og þá hefur hann áratuga reynslu af björgunarsveitarstörfum á Íslandi og starf hans mun felast í úrvinnslu ábendinga úr öryggisúttektum EuroRAP, öryggismerkingum í keppnisbrautum og samhæfingu og samskiptum björgunar- og viðbragðsaðila mótsins við stjórnendur.

Áhersla á umfangsmikið viðbragðsteymi

Áfram verður unnið með Björgunarsveitum á Laugarvatni og Selfossi, Lögreglunni á Suðurlandi og Sjúkraflutningum í Árnessýslu að því að á Laugarvatni verði öflugasta viðbragðsteymi sem völ er á í hjólreiðakeppni á Íslandi. Tvær björgunarsveitir með viðbragðsbíla, sjúkraflutningabíll, læknir og sjálfboðliðar hafa komið að innri öryggismálum í keppninni til þessa og munu gera áfram. Í keppninni í fyrra voru viðbragðsteymi lögreglu og sjúkraflutninga í fyrsta sinn staðsett á Laugarvatni ofan á annan viðbúnað keppninnar þar. Eins og flestir vita varð alvarlegt slys í keppninni í fyrra, en eftir að slysið var tilkynnt var allt tiltækt lið lögreglu, sjúkraflutninga, og björgunarsveita komið á slysstað á um það bil 15 mínútum.

Njóta eða þjóta

Gildi keppninnar verða áfram: Vinátta, virðing og keppni – og verða þau í hávegum höfð. Keppendur í Silfurhring geta valið um „njóta“ eða „þjóta“ ræsingu. Sú fyrrnefnda er fyrir þá sem eru umfram allt hjóla til að hafa gaman og keppa við sjálfa sig en sækjast ekki eftir að slá brautarmetin.

Í stað drykkjastöðvar verða „gleðistöðvar“ þar sem bæði verður boðið upp á mat, drykk og alls konar uppákomur.

 

Hér er hægt að skrá sig í Gullhringinn: http://gullhringurinn.competiz.com/

Meira um KIA Gullhringinn: www.kiagullhringurinn.is

Meira um KIA: http://www.kia.com/is/

Meira um EuroRap: http://www.eurorap.org/partner-countries/iceland/

George Hincapie
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 2 dögum

Margrét Friðriks tekur upp nýtt nafn – „Finnst það koma með ferskan blæ inn ì mitt líf“

Margrét Friðriks tekur upp nýtt nafn – „Finnst það koma með ferskan blæ inn ì mitt líf“
Fókus
Fyrir 2 dögum

Þjáningar Sævars – Nýtt lag og fjársöfnun

Þjáningar Sævars – Nýtt lag og fjársöfnun