fbpx
Laugardagur 27.apríl 2024

Topp 10 jólagjafahugmyndir fyrir alla!

Pirraða, pjattaða, tæknisinnaða eða menningarlega týpan?

Margrét Gústavsdóttir
Föstudaginn 22. desember 2017 13:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

FYRIR SKVÍSUNA eða SKVÍSANN

St. Tropez brúnkumeðferð

Í svartasta skammdeginu getur verið gott að lífga upp á útlitið með svolítilli sólarbrúnku.

St. Tropez merkið frá Kaliforníu ku vera fremst meðal jafningja í framleiðslu á þessum „self tan“ vörum sem njóta mikilla vinsælda um allan heim.

Vinsælustu vörurnar í dag eru Express brúnkufroðan sem notast bæði á andlit og líkama, Instant Tan Gloss sem gefur mjög fallega áferð, og Express taumaski fyrir andlit ásamt sérlegum hanska til að bera kremin á.

Fæst: Til dæmis hjá Lyfjum og Heilsu
Verð: Express froðan – 6.598 kr., Instant Tan Gloss – 2.744 kr., Express taumaski fyrir andlit, – 1.472 kr.


Nisti frá Hlín Reykdal

Inn í þessi fallegu nisti frá íslenska hönnuðinum Hlín Reykdal er hægt að setja myndir, ljóð, teikningar eða leyndarmál.

Fæst: Hjá Hlín Reykdal Concept Store, Fiskislóð 75 úti á Granda
Verð: 8.900 kr.


„Andlitslyfting í krukku“ frá Glamglow

„Andlitslyfting í krukku“ kalla framleiðendur Gravity Mud Firming maskann frá Hollywood. Maskinn er hugsaður fyrir 30 ára og eldri. Hann þéttir og stinnir húðina á um það bil hálftíma, tilvalinn undirbúningur fyrir hátíðleg tilefni eða aðrar góðar stundir þar sem fólk vill skarta sínu fegursta.

Fæst: Til dæmis hjá vefversluninni Fotia.is, í Lyfjum og Heilsu, Hagkaupum, Lyfju og fleiri snyrtivöruverslunum.
Verð: Um 9.390 kr.


FYRIR MENNINGARVITANN

Gjafakort í Leikhúsin

Gjafkort í Þjóðleikhúsið eru á sérstöku tilboðsverði fyrir jól, kosta 4.950 kr. og gilda á sýningu að eigin vali. Í undantekningartilfellum er greitt aukagjald þegar um hækkað miðaverð er að ræða. Gjafakort eru afhent í fallegri öskju.

Gjafakortin í Borgarleikhúsið gilda fyrir tvo og kosta frá 9.900 kr. en verð er misjafnt eftir sýningum. Í Borgarleikhúsinu er einnig hægt að panta ljúffengar snittur eða tapasrétti til að njóta fyrir sýningu eða í hléi.

Fæst: Hjá Borgarleikhúsinu og Þjóðleikhúsinu.
Verð: Frá 4.950 kr. (fyrir eitt sæti)


Tónleikar með Nick Cave

Íslendingar hafa löngum haft mikið dálæti á hinum ástralska Nick Cave. Hann verður á tónleikaferðalagi um Evrópu næsta sumar og kannski tilvalið að splæsa í tvo miða?

Fæst:Best að kaupa á netinu. Frekari upplýsingar um staði og tímasetningar á www.nickcave.com/live
Verð: Mismunandi eftir löndum – til dæmis kostar miðinn 56 evrur á tónlistarhátíðina inMusic sem haldin verður í Zagreb í Króatíu 26. júní 2018


Teiknikol

Er listamaður eða listakona sem þig langar að gleðja? Mögulega einhver sem á eftir að koma út úr skápnum í þessum skilningi? Hér er allt í einum pakka til að byrja að teikna með kolum. Fínt að para með fallegri teikniblokk.

Fæst:Í Pennanum Eymundsson
Verð: 3.649 kr.


FYRIR TÆKNITÝPUNA

Mynd: CANON.INC

Þessi flotta Canon-vél er af tegundinni G9 X (Mark II). Hana er hægt að tengja beint við wi-fi net og bluetooth.

Verð:69.000 kr.
Fæst: Hjá Beco


FYRIR NEIKVÆÐU TÝPUNA

Framfarir eftir Johan Norberg

Daglega dynja á okkur fréttir um eymd, sjúkdóma, glæpi, stríð, mengun og hamfarir og sumir taka tíðindin óskaplega nærri sér enda vont að glasið sé alltaf hálf tómt. Johan Norberg, sagnfræðingur og rithöfundur, segir aðra sögu og styður hana margvíslegum staðreyndum: Fátækt hefur minnkað, heilsufar snarbatnað, dregið hefur úr ofbeldi og stríðum fækkað. Þótt enn sé til ýmislegt böl, höfum við fulla ástæðu til að horfa bjartsýn fram á veg. Hvernig væri að gefa vini þínum sem er „virkur í athugasemdum“ þessa stórfínu bók? Hún gæti kannski hresst hann við.

Fæst:Hjá Bókafélaginu og í helstu verslunum sem selja bækur
Verð: 2.550 kr.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 6 klukkutímum

Halla Hrund komin með forystu í nýrri skoðanakönnun – Skýtur Katrínu og Baldri ref fyrir rass

Halla Hrund komin með forystu í nýrri skoðanakönnun – Skýtur Katrínu og Baldri ref fyrir rass
433Sport
Fyrir 6 klukkutímum

Liverpool og Feyenoord að ganga frá smáatriðum

Liverpool og Feyenoord að ganga frá smáatriðum
433Sport
Fyrir 8 klukkutímum

Fyrstu kaup Slot gætu orðið áhugaverð – Kostaði lítið fyrir ári en nú kostar hann tæpa 10 milljarða

Fyrstu kaup Slot gætu orðið áhugaverð – Kostaði lítið fyrir ári en nú kostar hann tæpa 10 milljarða
Fókus
Fyrir 8 klukkutímum

MeToo-byltingin nötrar eftir sláandi bakslag – Verður Weinstein laus allra mála?

MeToo-byltingin nötrar eftir sláandi bakslag – Verður Weinstein laus allra mála?
433Sport
Fyrir 10 klukkutímum

Chelsea skoðar að reka Pochettino – Þrír menn á lista

Chelsea skoðar að reka Pochettino – Þrír menn á lista
Fókus
Fyrir 10 klukkutímum

60 ára og skrefi nær því að verða elsti þátttakandi Miss Universe

60 ára og skrefi nær því að verða elsti þátttakandi Miss Universe
Fókus
Fyrir 12 klukkutímum

Þurfti að læra að lifa upp á nýtt eftir maníu – „Það er partur af mér að vera með geðhvarfasýki og það er enginn dauðadómur, trúðu mér“

Þurfti að læra að lifa upp á nýtt eftir maníu – „Það er partur af mér að vera með geðhvarfasýki og það er enginn dauðadómur, trúðu mér“
433Sport
Fyrir 12 klukkutímum

Dregið í bikarnum – Stórleikur í Garðabænum

Dregið í bikarnum – Stórleikur í Garðabænum