fbpx
Föstudagur 26.apríl 2024
Fókus

Steinninn, slaufan og stuðningurinn

Ása Gunnlaugsdóttir, hönnuður Bleiku slaufunnar 2017, hefur starfað við skartgripahönnun á Ísafirði, í Helsinki og í Seúl í Suður-Kóreu.

Margrét Gústavsdóttir
Laugardaginn 14. október 2017 19:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Hún hefur átt viðburðaríka ævi og býr að mikilli reynslu sem hefur meðal annars veitt henni innblástur og framkallað þakklæti fyrir það að fá að búa á Íslandi.

„Ég lærði í Finnlandi á sínum tíma, gull- og silfursmíði í hönnunarháskóla sem kallast Lahti Design Institute. Ég tók silfursmíði sem aðalfag, en silfursmiðir sinna aðallega því að búa til stærri hluti á borði við kertastjaka, skálar og þess háttar. Í gullsmíðanáminu einblíndi ég hins vegar á skartgripasmíði og hönnun skartgripa en það er hefðin í gullsmíði.“
Að grunnnáminu loknu sótti Ása um að komast í masternám við hinn virta Aalto-háskóla í Helsinki og þaðan útskrifaðist hún úr iðnhönnunardeild árið 1997. Hún bjó og starfaði í Finnlandi í samtals áratug og þar öðlaðist hún meðal annars góða reynslu hjá fyrirtækinu Kalevala Jewlery sem er stærsti og þekktasti skartgripaframleiðandi Finna og líklegast sá stærsti á Norðurlöndum. „Þarna fékk ég góða innsýn í það hvernig er best að hanna skart sem ætlað er til framleiðslu í miklu magni. Það eru allt önnur vinnubrögð en þegar smíðaðir eru stakir gripir.“

Helsinki, Ísafjörður og Seúl

Að Finnlandsdvölinni lokinni flutti Ása beint til Ísafjarðar þar sem hún starfaði á gullsmíðaverkstæði og í verslun Dýrfinnu Torfadóttur.
„Það var mjög skemmtilegt að koma beint í þetta frábæra samfélag á Ísafirði enda allt annar heimur en ég hafði vanist í Helsinki. Fyrst ætlaði ég bara að vera á Ísafirði í þrjá mánuði og en svo ílengdist ég og þetta varð eitt ár. Svo fór ég þaðan til Suður-Kóreu, eiginlega alveg óvart. Þetta var rétt fyrir síðustu aldamót. Netið var enn hálfgerð nýlunda og ég var eitthvað að vafra þar um. Langaði að finna mér vinnu einhvers staðar í útlöndum og ná mér í meiri reynslu. Svo lenti ég inni á einhverri síðu þar sem var auglýst eftir hönnuði, hún leiddi mig á aðra síðu og svo koll af kolli og áður en ég vissi af var ég búin að ráða mig í vinnu til Suður-Kóreu. Mér var sendur flugmiði, atvinnuleyfinu var reddað og allt í einu var ég mætt til starfa hinum megin á hnettinum. Þetta var alveg hræðilegt!“ segir Ása og skellir upp úr.

Einn dagur í frí á þremur mánuðum

„Í sjálfu sér gerði ég mér enga grein fyrir því í hvers konar starf ég hafði ráðið mig,“ rifjar Ása upp, en hún var rétt um þrítugt þegar hún hélt í þessa óvissuferð til Kóreu.

„Ég var mest að vinna við það sem kallast listiðnhönnun. Þetta voru til dæmis snyrtivöruumbúðir, seglar á ísskápa, strokleður, pennar og bara alls konar dótarí. Það var enginn verkefnaskortur á þessari hönnunarstofu. Fyrstu þrjá mánuðina í starfinu fékk ég að taka mér frí í einn dag. Tólf klukkustunda vinnudagar voru normið en lengsti vinnudagurinn var 32 tímar minnir mig. Maður fékk aldrei yfirvinnu greidda en þau borguðu þó kvöldmatinn,“ segir hún og hlær að minningunni.

Flakkaði svo um Suðaustur-Asíu

Ása skrifar það á þrjóskuna í sjálfri sér að hún entist í þessu furðulega starfi í Suður-Kóreu í eitt ár, eða þar til samningi hennar við hönnunarstofuna var lokið. Þá pakkaði hún hafurtaski sínu saman í bakpoka og hélt í ferðalag um Suðaustur-Asíu.

„Ég var á flakki í gegnum Kína, fór niður Hong Kong, flaug þaðan til Taílands, Malasíu og dvaldist svo í Singapúr þangað til peningarnir voru búnir. Þá kom ég aftur heim reynslunni ríkari. Þegar maður er búin að vinna á stað eins og ég vann á þarna í Suður-Kóreu þá lærði ég auðvitað að meta litla Ísland mun betur og upplifði þakklæti fyrir það að fá að búa hér og starfa.“

Eitt bros getur dimmu í dagsljós breytt

Ása stofnaði sitt eigið hönnunarfyrirtæki, Asa Iceland, árið 2009 en undir því merki framleiðir hún vinsælt skart sem vísar til íslenskrar náttúru.
Í ár ákvað hún svo að slá til og prófa að senda inn umsókn í hönnunarsamkeppnina sem Félag íslenskra gullsmiða og Krabbameinsfélagið hafa haft um Bleiku slaufuna undanfarin ár.

„Þetta var í fyrsta sinn sem ég tók þátt í þessari hönnunarkeppni og er þakklát fyrir að mínar tillögur voru valdar. Ég hannaði silfurslaufuna í hálsmeni, svo er það hin hefðbundna næla Bleiku slaufunnar en þriðju slaufuna, armbandið, gerði ég í samvinnu við danska merkið Rubz. Við hönnun slaufunnar hugsaði ég mikið um það að horfa inn á við. Ég velti fyrir mér hinum áhrifaríku orðum í ljóði Einars Ben um Einræður Starkaðar, að eitt bros gæti dimmu í dagsljós breytt og hversu gott það er að fá, og sýna öðrum stuðning. Viðleitni mín til að túlka þetta felst meðal annars í því að steinninn er kjarni hönnunarinnar en slaufan sjálf er stuðningurinn við steininn. Þetta rímar á sama tíma við grundvallarprinsippin í gullsmíðinni þar sem gullið, eða málmurinn, er alltaf stuðningur við steininn.“

Bleiku Slaufuna má kaupa hér á vef Krabbameinsfélagsins

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 2 dögum

Margrét Friðriks tekur upp nýtt nafn – „Finnst það koma með ferskan blæ inn ì mitt líf“

Margrét Friðriks tekur upp nýtt nafn – „Finnst það koma með ferskan blæ inn ì mitt líf“
Fókus
Fyrir 2 dögum

Þjáningar Sævars – Nýtt lag og fjársöfnun

Þjáningar Sævars – Nýtt lag og fjársöfnun