Mynd
Vilja byggja Fossvogsbrú á nóttunni - Lýst yfir áhyggjum af áhrifunum á heilsu íbúa
Betri samgöngur ohf. hafa óskað eftir því að Umhverfis-, orku og loftslagsráðuneytið veiti undanþágu frá reglugerð um hávaða svo hægt sé að vinna að byggingu Fossvogsbrúar á nóttunni. Er þetta gert vegna beiðni rekstraraðila Reykjavíkurflugvallar, dótturfélags Isavia, um að ekki verði skerðing á starfsemi flugvallarins vegna framkvæmdanna.