fbpx
Þriðjudagur 24.febrúar 2026

Óflokkað

Spákaupmenn

Spákaupmenn

Eyjan
28.03.2008

Davíð Oddsson telur að alþjóðleg öfl séu að ráðast á íslenskt efnahagslíf – og vill verjast þeim árásum. Þarf að minna á að 1992 gerðu spákaupmenn atlögu að breska pundinu – og höfðu betur? Foringi þessa flokks hét George Soros og varð ofsaríkur fyrir bragðið. Þá var lítið um varnir.

Sarko gerir Bretum tilboð

Sarko gerir Bretum tilboð

Eyjan
28.03.2008

Timothy Garton Ash skrifar merkilega grein í Guardian í gær þar sem hann fjallar um heimsókn Sarkozys Frakklandsforseta til Bretlands. Í heimsókninni hefur Sarkozy látið allt öðruvísi en fyrirrennarar hans á forsetastóli. Hann á ekki nógu sterk orð til að þakka Bretum fyrir að hafa barist fyrir Frakka í stríðinu, hann lofar og prísar breskt Lesa meira

Ögmundur og Auden

Ögmundur og Auden

Eyjan
28.03.2008

Ég hef verið spurður að því hvar það birtist kvæði Ögmundar Bjarnasonar læknis um W.H. Auden og seinni Íslandsheimsókn hans. Þetta kvæði var flutt í Kiljunni á miðvikudag – og mér láðist að geta hvar það kom á prent. En það var semsagt í hinu ágæta TMM – Tímariti Máls & menningar – sem er Lesa meira

Samtök atvinnulífsins og Evrópa

Samtök atvinnulífsins og Evrópa

Eyjan
28.03.2008

Aðalmálið hjá Samtökum atvinnulífsins næstu árin verður Evrópa. Það hefur meira að segja verið sagt í mín eyru að samtökin kunni að klofna vegna Evrópumála. Framkvæmdastjóri SA, Vilhjálmur Egilsson, er Evrópusinnaður þótt hann sé fyrrverandi þingmaður Sjálfstæðisflokksins. Formaðurinn hefur verið Ingimundur Sigurpálsson. Hann kemur úr þeim kima viðskiptalífsins sem eitt sinn nefndist Kolkrabbinn. Ingimundur forstjóri Lesa meira

Hverjum er ekki sama?

Hverjum er ekki sama?

Eyjan
28.03.2008

Það er voða skrítið að ætla að fara að gera mál úr einhverri mynd sem hollenskur stjórnmálamaður sem heitir Geert Wilders hefur gert. Þegar ég sá fréttina hélt ég fyrst að væri verið að tala um leikarann góðkunna Gene Wilder. Enda hef ég aldrei heyrt um þennan hollenska stjórnmálamann. Og hef engan áhuga á honum. Lesa meira

Sektir

Sektir

Eyjan
27.03.2008

Vilhjálmur Þ. boðar að borgin muni beita dagsektum vegna niðurníddra húsa. Þarf borgarstjórnin þá ekki aðallega að sekta sjálfa sig?

Atvinnubótavinna

Atvinnubótavinna

Eyjan
27.03.2008

Nú erum við farin að sjá hvaða fólk þingmenn ráða sem aðstoðarmenn sína. Og þetta er nákvæmlega eins og allir vissu að þetta myndi fara. Atvinnubótavinna fyrir fólk úr flokkunum sem hingað til hefur raðað stólum, bloggað og skrifa lesendabréf kauplaust.

Bankarnir, sjávarútvegurinn og gengisfellingar

Bankarnir, sjávarútvegurinn og gengisfellingar

Eyjan
27.03.2008

Síðunni hefur borist eftirfarandi bréf frá ágætum kunningja: „Nú hafa bankarnir tekið við hlutverkinu sem sjávarútvegurinn gegndi áður. Ef rekstarkostnaðurinn var að sliga fiskvinnsluna þá var gengið bara fellt og þannig lækkaði kostnaðurinn og verðið á afurðunum hækkaði. Reksturinn er greinilega ekki að ganga hjá KauptHIEF… (var það ekki það sem John sagði í auglýsingunni?) Lesa meira

Styrmir sjötugur

Styrmir sjötugur

Eyjan
27.03.2008

Jón Baldvin Hannibalsson skrifar mikla afmælisgrein um bekkjarbróður sinn úr Skeggjabekknum í Laugarnesskóla 1952 í 24stundir í dag. Bekkjabróðirinn er auðvitað enginn annar en Styrmir Gunnarsson sem er sjötugur í dag. Jón Baldvin skýtur skildi fyrir þennan gamla vin sinn vegna greinarinnar sem nýskeð birtist í tímaritinu Herðubreið og er sögð vera eftir Karl Th. Lesa meira

Mest lesið

Ekki missa af

Mate flytur sig um set