Mun ofbeldið magnast?
EyjanErum við að stefna í tíma þegar barist verður hér á götunum? Maður spyr sig hvort raunveruleg hætta sé á því. Hér er stungið upp á því að stofnaðar verði hvítliðasveitir. Landsfundur Sjálfstæðisflokksins er síðar í mánuðinum. Einhvern veginn óttast maður að sjóði upp úr í kringum hann. Stjórnvöld þurfa að átta sig á því Lesa meira
Slæmar eru horfurnar
EyjanHorfurnar fyrir árið 2009 eru verstar á Íslandi samkvæmt þessari frétt í Economist. Það er að segja mestur samdráttur.
Helen Suzman
EyjanHér er minningargrein um merka og hugrakka konu sem barðist fyrir hugsjónum sínum gegn einni af alræðisstefnum tuttugustu aldarinnar, ofbeldi og kúgun. Hvítur þingmaður í Suður-Afríku sem studdi réttindi svartra á myrkasta skeiði apartheid. Var eina konan á þingi um langt skeið á móti 165 karlmönnum sem studdu helstefnuna. Hún heimsótti Mandela og samfanga hans Lesa meira
Íslenskt viðskiptalíf, heimavætt en ekki hnattvætt
EyjanSigrún Davíðsdóttir, fréttaritari útvarpsins í Lundúnum, flutti þennan pistil í Speglinum 18. desember. Efni hans er áhugavert í ljósi umræðna um gegnsæi, reglur eða skort á reglum í íslensku viðskiptalífi. — — — Það er tvennt sem getur komið viðskiptajöfrum á forsíðu Financial Times: annars vegar einstakur árangur, hins vegar óeðlilegir viðskiptahættir. Brosandi andlit David Lesa meira
Orð og gerðir
Eyjan„En vandinn virðist einnig sá að tækni þeirra sem hafa hag af því að koma hlutum í uppnám, spila á kerfið og veðja gegn hagsmunum almennings, hefur líka fleygt fram. Þess vegna er mjög brýnt að herða reglur um hegðan á fjármálamarkaði og taka fast á öllum brotum.“ Þetta sagði Geir Haarde í áramótaræðu sinni. Lesa meira
Salinger níutíu ára.
EyjanÞetta er ein af heillandi ráðgátum bókmentanna. J.D. Salinger. Maðurinn sem skrifaði Catcher in the Rye og svo safn frábærra smásagna. Hann hefur ekkert gefið út síðan rétt upp úr 1960. Hann er felumaður, sagt er að hann búi í New Hampshire í húsi með ókláruðum handritum. Menn hafa lengi beðið eftir nýrri bók Lesa meira
Góð ræða hjá biskupi
EyjanÉg fór í Dómkirkjuna í morgun, fannst Karl Sigurbjörnsson biskup flytja mjög góða ræðu. Ræðuna má finna hér. „Við þurfum að endurheimta þá sameiginlegu samfélagssýn á Íslandi, sem byggir á umhyggju og þjónustu umfram allt, á virðingu og trausti, á ábyrgð og skyldu fremur en réttindum, á langtíma uppbyggingu samfélags fremur en skyndigróða til eigin Lesa meira
Rauða kross svindlið
EyjanHlutabréf starfsmanna Landsbankans eru vistuð í skattaskjóli í Panama. Til að hylma yfir gjörninginn er nafn Rauða krossins notað. Hvaða orð notar maður um svona? Bíræfni? Ófyrirleitni? Siðleysi? Kjartan Pierra fjallar um þetta svindl hérna.
Æfingabúðir á Alþingi
EyjanVinstri grænir eru með níu manna þingflokk. Samkvæmt vef Alþingis eru fjórir þessara þingmanna fjarverandi og hafa kallað inn varamenn. Spurning er hvort þetta sé nauðsyn – hvort þingflokkur VG sé í aðra röndina einhvers konar æfingabúðir eða hvort prinsípp flokksins á þingi sé að allir eigi að fá að vera með? Annars er maður Lesa meira
Fjarmi
EyjanObba skrifar um fjarstýringar. Það kemur efni pistils hennar ekkert við en á mínu heimili er þessi hlutur aldrei kallaður annað en fjarmi. „Ertu með fjarmann? Réttu mér fjarmann.“ Fyrst byrjaði þetta sjálfsagt í gríni, en nú er hefur þetta ágæta orð tekið yfir. Þetta minnir mig annars á það að Bjarni Þórarinsson myndlistarmaður vildi Lesa meira
