Helgi Hálfdanarson
EyjanÁ þessum degi sér maður að einn af jöfrum íslenskra bókmennta, Helgi Hálfdanarson, er dáinn í hárri elli, 97 ára. Hann var fæddur 1911. Eftir hann liggur ótrúlegt verk, þýðingar á Shakespeare, grískum harmleikjum, Kóraninum, kínverskum og japönskum ljóðum, Hóratíusi og ýmsum öðrum kveðskap. Annars var hann upphaflega lyfsali, stundaði lyfsölu á Húsavík og í Lesa meira
Menn sem spila djarft
EyjanSamkvæmt þessari frétt í Morgunblaðinu hyggjast Jón Ásgeir og félagar fara í skaðabótamál vegna yfirtöku ríkisins á Glitni. Þeir ætla að gera þetta í nafni hins fræga útrásarfyrirtækis FL-Group/Stoða. Ég held reyndar að þeir séu að djóka nema kannski þeir haldi að með þessu styrki þeir samningsstöðu sína. Það má minna á að mál Stíms Lesa meira
Hin ofsafengna trú á framfarir
EyjanBirtist í DV 9. október 2004 Einn af mörgum veikleikum mínum er lestur bóka um kommúnismann. Vinur minn sem er sjálfur ekki fráhverfur svona fræðum kom í heimsókn og tók andköf yfir því hvað ég á mikið af svona ritum. Og þau bætast enn í safnið, að minnsta kosti tugur síðan í fyrrasumar. Ég lagði Lesa meira
Vondur andi
EyjanÉg og konan mín ræddum um að það væri eins og vondur andi lægi yfir bænum seint í kvöld. Stuttu síðar las hún á blogginu að lögreglumaður hefði slasast í mótmælunum. Ég fór út og gekk út að Stjórnarráði. Þar var vond stemming. Vont andrúmsloft. Og ekki bara vegna þess að táragasi hafði verið sleppt Lesa meira
Varðliðar
EyjanÉg sit hér fyrir ofan Kvosina og heyri lætin úr bænum. Sírenuvæl og sprengihvelli. Held að mótmælendur mættu íhuga að fara heim. Það er málstaðnum ekki til framdráttar að standa í slagsmálum við lögreglu að næturþeli. Það ber aðallega vott um …. löngun til að slást við lögregluna. Svo birtast svona náungar úr djúpum internetsins Lesa meira
Er búið að setja ráðherrana af?
EyjanEnginn ráðherra Samfylkingarinnar mætir á fund hjá flokksfélaginu í Reykjavík þar sem er samþykkt að slíta stjórnarsamstarfinu. Á fundinum er því fagnað með lófataki þegar borin er fram hugmynd um að allir núverandi þingmenn Samfylkingarinnar víki. Ingibjörg Sólrún á að hafa fullvissað Geir Haarde um að stjórnin sitji áfram. Á maður að líta þannig á Lesa meira
Reykjavíkurdagar
EyjanÞegar ég var lítill þvældist ég víða um Reykjavík. Bærinn var minni þá og kannski saklausari. Ég man til dæmis eftir því að hafa verið niðri í bæ árið 1968 þar sem var gerður aðsúgur að Bjarna Benediktssyni. Ég horfði á fólkið ráðast á bíl forsætisráðherrans. Þá var kreppuástand á Íslandi vegna aflabrests. Ég hef Lesa meira
Á að kjósa – núna eða seinna?
EyjanEinhvern veginn sýnist manni að ríkisstjórnin sé á síðustu metrunum, að hún sé þrotin að kröftum. Formaður Samfylkingarinnar á við erfið veikindi að stríða og á sama tíma er allt upp í loft í flokknum. Sjálfstæðismenn eru fullir kvíða vegna landsfundar eftir viku. Hann átti að snúast um ESB, en líklega mun hann snúast um Lesa meira
Óþarfa harka
EyjanÞessar tvær ljósmyndir hér að neðan sýna að lögreglan er að miða piparúðanum beint á ljósmyndara. Svipaða sögu má finna hér. Einhvern veginn er vandséð hvaða tilgangi þetta þjónar. Annað er spurning. Var hugsanlega beitt óþarfa hörku í mótmælunum í gær. Ungmenni voru tekin og handjárnuð fyrir aftan bak, sett í einhvers konar Guantanamostellingar og Lesa meira
Þingið lokað í dag
EyjanNú á maður ekki orð. Það er búið að fella niður þingfund í dag. Hvað er það annað en uppgjöf? Þingið þarf kannski að finna sér annan fundarstað? Kannski einhvers staðar þar sem fólkið finnur það ekki?
