fbpx
Föstudagur 27.febrúar 2026

Óflokkað

Consolium ehf

Consolium ehf

Eyjan
09.03.2009

Hér er merkilegt fyrirtæki sem sagt var frá í lítilli frétt fyrr í vetur. Consolium ehf. Félagið veitir skuldunautum bankanna ráðgjöf og þjónustu. Stofnendur fyrirtækisins eru Hreiðar Már Sigurðsson og Ingólfur Helgason, fyrrverandi Kaupþingsforstjórar. Ætli sé nóg að gera hjá svona fyrirtæki?

Tími Ingibjargar Sólrúnar var búinn

Tími Ingibjargar Sólrúnar var búinn

Eyjan
09.03.2009

Hver samfylkingarmaðurinn á fætur öðrum skrifar mærðarfullar greinar um formanninn fráfarandi, Ingibjörgu Sólrúnu. Samt er það svo að hún var orðin dragbítur á flokknum. Það er líklegt að honum vegni betur í kosningum án hennar en með hana í forystu. Það vita flokkmenn. Og þeir sakna henner varla meira en sjálfstæðismenn sakna Geirs Haarde. Skoðanakannanir Lesa meira

Joly hittir ráðherra og rannsakendur

Joly hittir ráðherra og rannsakendur

Eyjan
08.03.2009

Eva Joly var gestur hjá mér í Silfrinu í dag. Í endursýningu þáttarins í kvöld verður viðtalið sýnt með íslenskum texta og á morgun verður viðtalið tiltækt á vefnum með texta. Eva Joly dvelur hér í nokkra daga. Hún mun hitta ráðherra úr ríkisstjórninni, sérstakan saksóknara og ríkissaksóknara og einnig er ráðgert að hún fundi Lesa meira

Sjálfbær spilling

Sjálfbær spilling

Eyjan
08.03.2009

Alfreð Þorsteinsson stendur upp á fundi og segir að framsókn þurfi ekki að sækja spillingu til annarra flokka. Á að skilja það sem svo að Framsókn sé sjálfbær um spillingu.

Bréf um viðskiptavild, svefngengla, skuldadaga og útgáfu ástarbréfa

Bréf um viðskiptavild, svefngengla, skuldadaga og útgáfu ástarbréfa

Eyjan
08.03.2009

Ástarbréf Í byrjun árs 2008 voru bankarnir komnir í fjármögnunarvandræði og Glitnir stóð einna verst. Til að þess að ná sér á lánsfjármagn vildi Glitnir gefa út skuldabréf með engum veðum og fá aðra fjármálastofnun til að kaupa skuldabréfin. En ekki stóðu þau vel en með hjálp Seðlabankans mátti setja þau inn að veði þar Lesa meira

Eva Joly í Silfrinu í dag

Eva Joly í Silfrinu í dag

Eyjan
08.03.2009

Norsk/franski rannsóknardómarinn Eva Joly verður gestur í Silfri Egils í dag. Hún er einn þekktasti sérfræðingur í efnahagsbrotum í heiminum og er dáð fyrir framgöngu sína í hinu fræga Elf-hneyksli í Frakklandi. Hér fylgir æviágrip Evu Joly sem Jón Þórisson tók saman: Eva Joly er fædd í Noregi 1943 (Eva Gro Farseth) en fluttist 18 Lesa meira

Úrslit úr prófkjörum

Úrslit úr prófkjörum

Eyjan
07.03.2009

Björgvin G. er efstur hjá Samfylkingunni í Suðurkjördæmi og Kristján Möller er efstur í Norðaustrinu. Í öðru sæti fyrir norðan er Sigmundur Ernir. Hann er að fara að flytja erindi um ritskoðun/þöggun/sjálfsritskoðun. Fundarboðandi er Pen klúbburnn á Íslandi, fer fram í fyrirlestrasal Þjóðminjasafnsins kl. 14 á morgun. Hvort ætli Sigmundur flytji útgáfuna þar sem hann Lesa meira

Hjálp

Hjálp

Eyjan
07.03.2009

Guð hjálpi okkur sem þjóð ef við ætlum að eyða næstum tveimur mánuðunum í að rýna í skoðanakannanir á fylgi flokka.

Mest lesið

Ekki missa af