Léleg þátttaka er aðalfréttin
EyjanÉg verð að viðurkenna að stundum finnst mér skýringar stjórnmálafræðinga á pólitíkinni heldur flatneskjulegar. Sjónarhornið helsti þröngt. Ólafur Þ. Harðarson talar um að hafi orðið kynslóðaskipti. Jú, Geir Haarde, Björn Bjarnason og Ingibjörg Sólrún eru farin á braut. Við það gerist að þeir sem vorum næstir í tröppunni færast upp. Það eru nú öll tíðindin. Lesa meira
Sigrún um Baug og skuldsettar yfirtökur
EyjanÞað eru frábær tíðindi að Sigrún Davíðsdóttir skuli ætla að leggja okkur lið hér á Eyjunni. Fyrsti pistill hennar sem birtist í dag er mjög upplýsandi, fjallar meðal annars um skuldsettar yfirtökur. Þeim er lýst svona: „Fæstir áttuðu sig á því þá – en við vitum það núna – að líkt og á við um Lesa meira
Bréf um skuldir Exista, grimman Jóhannes, einkennileg lán og sama sukkið
EyjanKrónubrask That large short-sale position of ISK by the banks is quite shocking. It was currency manipulation and should be treated as such. It is even more shocking that the banks would take such a position against their own currency. Banks often short other currencies. For instance, Deutsche Bank and JP Morgan caused the crash Lesa meira
Húsleit hjá FME?
EyjanSérstakur saksóknari fær ekki endurskoðunarskýrslur bankanna frá Fjármálaeftirlitinu. Saksóknarinn hefur ýmsar valdheimildir. Spurning er hvort hann geti gert húsleit hjá Fjármálaeftirlitinu?
Áhugavert sjónvarpseinvígi
EyjanHér er sjónvarpsþáttur sem hefur vakið heimsathygli. Þáttastjórnandinn Jon Stewart tekur í lurginn á Jim Cramer, öðrum þáttastjórnanda. Cramer er úr stétt viðskiptafréttamanna, á viðskiptafréttastöðinni CNBC. Eins og svo margir viðskiptafréttanna voru þeir á bandi stórfyrirtækjanna – gegn almenningi. Og Stewart er ofboðið. Hér er lýsing á viðureign þeirra úr Guardian.
Erfitt hjá Sjálfstæðisflokknum
EyjanLoftur Altice Þorsteinsson, frambjóðandi til formennsku í Sjálfstæðisflokknum, bendir á að kjörsókn í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík hafi verið svo léleg að kosningin sé ekki bindandi. Það er hætt við að róðurinn verði mjög þungur hjá Sjálfstæðisflokknum í Reykjavík með frambjóðendurna sem náðu efstu sætunum í prófkjörinu í gær.
Besti kennarinn minn
EyjanÍ gær var haldin með glæsibrag 50 ára afmælishátíð Vesturbæjarskóla. Kári er í skólanum og líkar vel. Skólinn er nú á horni Framnesvegs og Sólvallagötu, þar sem í eina tíð var hinn frægi Framnesvöllur. Þar hófu margir knattspyrnugarpar feril sinn, sá stórkostlegasti var ábyggilega Þórólfur Beck. En þegar ég var í Vesturbæjarskóla fyrir fjörutíu árum Lesa meira
Þunglyndisleg prófkjör
EyjanÉg hef ekki nennt að fylgjast mikið með þessum prófkjörum. Hef reyndar ekki skynjað mikinn áhuga á þeim nema hjá hörðu flokksfólki. En mér dettur fyrst í hug eitt orð um niðurstöðurnar: Þunglyndislegt.
Svokallaðir sparisjóðir
EyjanByr tapaði 35,8 milljörðum á síðasta ári – og vill fá framlag frá ríkinu. Reyndar virðist vera í gangi býsna viðamikið áætlun um að bjarga sparisjóðunum – afsakið – maður ætti eiginlega að segja hinum svokölluðu sparisjóðum. Því Byr, SPRON og Sparisjóðabankinn eru engir sparisjóðir lengur heldur einkafyrirtæki. Gunnar Axel skrifar á vef sinn: „Fréttir Lesa meira
Portrettmyndir Jims Smart
EyjanEinn besti og eftirminnilegasti vinnufélagi sem ég hef haft á ævinni er Bretinn og ljósmyndarinn Jim Smart. Og ekki bara af því að Jim er skemmtilegur og glaðvær félagi, drengur góður og sannur heiðursmaður. Þau eru ófá helgarviðtölin sem við gerðum saman á sínum tíma – og birtust í Helgarpóstinum. Helgarviðtölin voru nýung í íslenskri Lesa meira
