Hafa þeir ekkert lært?
EyjanViðskiptaráð er bandalag stóru samsteypanna og eignarhaldsfélaganna sem hafa eyðilagt íslenskt efnahagslíf. Með græðgi sinni og ófyrirleitni. Nú stígur fram framkvæmdastjóri ráðsins og varar við stöðnun hér – vegna þess að fólk dirfist að setja út á arðgreiðslur í fyrirtækjum. Framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins hefur haft uppi sama málflutning. Það er ekki nema vika síðan formaður Lesa meira
Landsbankafélag leyst upp í Lúx án umboðs skilanefndarinnar?
EyjanSigrún Davíðsdóttir flutti þennan pistil í Speglinum á RÚV í gær. — — — Landsbankinn stofnaði dótturfélög í Lúxemborg sem ekki koma fram í ársskýrslu bankans. Eitt þessara félaga var leyst upp í nóvember af lögfræðingi sem ekki var fulltrúi skilanefndar bankans. Nereiður er vættur úr grískri goðafræði – en þetta er einnig nafn á Lesa meira
Ofgreiddi arð
EyjanEigandi Söluturns Simma greiddi sjálfum sér arð af rekstri félagsins á síðasta ári, 10 milljarða króna, þrátt fyrir að söluturninn hafi ekki skilað nema 5.000 króna hagnaði.
Mogginn um mál sem gæti þurft að rannsaka
EyjanMorgunblaðið birti í síðasta mánuði mjög greinargóða úttekt á málum sem bíða sérstaka saksóknarans, Ólafs Þ. Haukssonar. Hana má sjá með því að smella hér. Ágætt að rifja þetta upp á þessum tímapunkti. Síðan hefur líklega eitthvað bæst við.
Sláum skjaldborg um saksóknarann
EyjanMaður finnur að farið er að gæta vaxandi óþreyju með sérstaka saksóknarann. Þetta hefur brotist fram eftir viðtal sem birtist við hann fyrr í vikunni. Viðtalið var ekki mjög heppilegt og maður veit ekki alveg hvað vakti fyrir Ólafi Haukssyni. Var þetta aðferð hans til að segja að hann þyrfti að fá fleiri starfsmenn, meira Lesa meira
Hvað gera ímyndarfræðingarnir?
EyjanEin af mestu ráðgátunum fyrir kosningarnar eftir mánuð er hvernig flokkarnir ætla að kynna sig. Hvað ímyndarfræðingar flokkanna ætla til bragðs að taka? Ekki vildi ég vera í þeirra sporum. Þetta er kannski tiltölulega einfalt fyrir Vinstri græn. Þau geta slegið upp slagorðinu: „Við erum saklaus! Við gerðum þetta ekki!“ En hvað með hina flokkana, Lesa meira
Galbraith yngri um stóra banka og forstjóraveldið
EyjanHér er merkilegt viðtal við hagfræðinginn John Galbraith, son hins goðsagnakennda Johns Kenneth Galbraith. Galbraith yngri telur að ekki sé nóg að gert til að mæta fjármálakreppunni og vill að stórir bankar verði yfirteknir og brotnir upp í minni einingar. Hann varar við því að gömlu yfirstjórnirnar sitji áfram. Hann segir ennfremur um það sem Lesa meira
Hvernig kemst upp um hvítflibbabrot
EyjanMyndin sem fylgir hérna með er merkileg í ljósi umræðunnar um bankaleynd og leka úr bönkunum. Sumir telja að það sé afar slæmt að upplýsingar leki úr kerfinu, álíta það alvarlega misnotkun. Þetta er súlurit sem er komið frá ACFE, Association of Certified Fraud Examiners í Bandaríkjunum, samtökum þeirra sem rannsaka fjármálamisferli. Súluritið sýnir hvernig Lesa meira
