Milljarðarnir 200 sem fóru til fjármagnseigenda, grein eftir Sölva Tryggvason
EyjanGrein þessi eftir Sölva Tryggvason birtist í DV í síðustu viku. Hún er endurbirt hérna með góðfúslegu leyfi höfundar. — — — Innspýting í peningamarkaðssjóði hefði staðið undir ICESAVE Ríkisstjórnin setti á haustmánuðum um það bil 200 milljarða í kaup á vafasömum bréfum úr peningamarkaðssjóðum ríkisbankanna. Miðað við mat margra ráðherra á skuldbindingum vegna Icesave Lesa meira
Hvenær verða Bakkabræður stöðvaðir?
EyjanFélag eins og Exista á ekki að hafa aðgang að neinu sem heitir „fjárhagsleg endurskipulagning“ nema það sé fyrst tekið af eigendum sínum. Þeir hafa farið í alls konar æfingar til að reyna að halda félaginu á floti, og nú virðist enn ein í uppsiglingu. Sparisjóðirnir á Íslandi sukku með Exista. Félagið skuldar hátt á Lesa meira
Svik?
EyjanBaldur McQueen ritar athyglisverða færslu um flokka, kjósendur og svik. Hann birtir meðal annars þessa töflu sem sýnir afstöðu kjósenda Sjálfstæðisflokksins til aðildarviðræðna við Evrópusambandið.
Margverðlaunaðir menn
EyjanÞetta er árið 2008. Í febrúar. Karl Wernersson er valinn viðskiptafræðingur ársins! Í niðurstöðu dómnefndar sagði: „Það voru margir til kallaðir en einn útvalinn. Sá útvaldi hefur reynslu í viðskiptalífinu sem fyllir tæpa þrjá áratugi – þótt hann sé ungur enn. Hann hefur alla tíð verið sjálfstæður í sínum rekstri sem hefur snertiflöt við stóran Lesa meira
Olíuverðið hækkar aftur
EyjanMeðfram efnahagsbata sem er að verða í heiminum hækkar verð á olíu. Nú er fatið komið í 63 dollara – og fer hækkandi. Í sumar sat ég við hliðina á skipamiðlara frá Hamborg í flugvél, hann er Egypti sem er búsettur í Þýskalandi. Við ræddum lengi saman og eitt af því sem hann sagði mér Lesa meira
Aftursætisbílstjórar
EyjanSjálfstæðisflokkurinn ætti að vera að endurskapa sig í stjórnarandstöðunni. Hann byrjaði ágætlega með endurreisnarnefndunum og endurreisnarskýrslunni. En hann er með hóp af körlum, gömlum foringjum, sem eru hættir, en eru samt að reyna að stjórna flokknum úr aftursætinu. Þetta er eitt hið versta sem getur komið fyrir stjórnmálaflokka. Um það eru mörg dæmi. Einna frægust Lesa meira
Staða flugfélags þjóðarinnar
EyjanHér á þessu bloggi er áhugaverð umræða um stöðu Icelandair – svona í framhaldi af því að einn stjórnarmaður taldi sér bolað burt til að hægt væri að koma „kommunum“ að. Sá virðist lifa í þeirri íslensku trú að menn eigi að sitja áfram þótt þeir setji allt á hausinn, bara ef þeir eru nógu Lesa meira
Kaffivísitalan
EyjanVerð á kaffibolla úr ítalskri kaffivél er á bilinu 370-390 á kaffihúsunum í miðborg Reykjavíkur, eða það hefur mér sýnst. Þetta gerir um 2 evrur. Nú er aldeilis ódýrt fyrir útlendinga að koma til Íslands. Kaffibolli á kaffihúsi á góðum stað í Frakklandi eða á Ítalíu kostar að minnsta kosti 3.50 evrur. Það gerir um Lesa meira
Walter Cronkite látinn
EyjanGallinn við fréttalesara í sjónvarpi er að þeir eru flestir eins, pinnstífir lesa þeir fréttirnar af textavél eins og automata. Yfirleitt er frekar leiðinlegt að horfa á þetta látbragð. Það verður ekki sagt um Walter Cronkite sem nú er látinn í hárri elli. Hann var frábærlega mannlegur og eðlilegur, enda var hann elskaður og dáður Lesa meira
Á spenanum
EyjanÁhugamaður um landbúnað og ferska matvöru sendir þetta bréf. — — — Það að halda að hér muni flæða mjólk hér inn eins og sagt var í þinginu í vikunni, það er náttúrulega bara fáránleg hugmynd. Fyrir hvern ætti að borga sig að flytja hana inn? Mjólk þarf að flytjast við ákveðið hitastig alla leið Lesa meira
