fbpx
Þriðjudagur 03.mars 2026

Óflokkað

Bréf um siðblindu, bjögga, álver og spillingu upp að öxlum

Bréf um siðblindu, bjögga, álver og spillingu upp að öxlum

Eyjan
29.07.2009

Álbræðslur Álverksmiðjurnar eru svikamyllur. Öll aðföng fyrir utan rafmagn og vinnuafl eru keypt frá móðurfyrirtækinu eða dótturfyrirtækjum þess og öll framleiðslan seld til baka. Með því að stýra aðkaupum og sölu er leikur einn að láta hagnaðinn af keðjunni koma fram þar sem það er hagstæðast fyrir móðurfyrirtækið. Klassísk aðferð er að skuldsetja álverksmiðjurnar stórkostlega. Lesa meira

Upp í skuldirnar

Upp í skuldirnar

Eyjan
29.07.2009

Kaup Gaums, félags í eigu Jóns Ásgeirs, á skíðaskála í eigu Baugs, félags í eigu Jóns Ásgeirs, voru fjármögnuð af Glitni, banka í eigu Jóns Ásgeirs. Á þeim tíma skulduðu félög Jóns Ásgeirs og félög tengd honum Glitni tugi milljarða króna. Fyrir utan peningamarkaðssjóðina sem þeir fengu að vaða í eins og enginn væri morgundagurinn. Lesa meira

Íslenskt útsölurafmagn

Íslenskt útsölurafmagn

Eyjan
29.07.2009

Viðhorfið hefur alltaf verið að finna einhverja útlendinga sem upp á náð og miskunn væru til í að nota rafmagnið okkar. Líkt og við værum bónbjargarmenn sem helst enginn vildi eiga viðskipti við – nema við legðumst alveg flöt. Einn angi málsins er auðvitað sá að erlendar fjárfestingar á Íslandi hafa almennt verið mjög óaðlaðandi, Lesa meira

Samson í lestarstöð tækifæranna

Samson í lestarstöð tækifæranna

Eyjan
28.07.2009

Hér er merkileg skýrsla, mat Fjármálaeftirlitsins á því hvort Samson, félag Björgólfsfeðga, væri hæft til að vera eigandi Landsbankans. Þessi „ákvörðun“ FME er frá því 3. febrúar, löngu eftir að Davíð Oddsson og Halldór Ásgrímsson höfðu ákveðið hverjir yrðu kaupendur Landsbankans – það hefði verið tilkynnt um haustið 2002. En Fjármálaeftirlitið þurfti formsins vegna að Lesa meira

Borgar hann?

Borgar hann?

Eyjan
28.07.2009

Þá hef ég óskað eftir því við lögmann minn að hann kanni stöðu mína í því flóði skipulagðs óhróðurs, véfrétta og lyga sem vef- og fjölmiðlar á Íslandi hafa tekið að sér að dreifa um mig og fyrirtæki mín. Ég tel þetta mál vera grafalvarlegt og mun ég sækja rétt minn eins fast og hægt Lesa meira

Skallapopp

Skallapopp

Eyjan
28.07.2009

Með umfjöllun Time um áhrifamesta fólk í heiminum er hræðileg mynd af Paul Simon með yfirgreiddan skalla, hárígræðsluna gömlu og strekkt andlit. Eins og geimvera eða eitthvað úr Nip/Tuck. Hann er 64 ára, nýbúinn að gefa út plötu – ég hef verið að hlusta á lög af henni. Upptökustjóri er sjálfur Brian Eno. Platan er Lesa meira

Psýkópatar

Psýkópatar

Eyjan
28.07.2009

Stefán Snævarr veltir því fyrir sér hvort psýkópatar hafi tekið völdin á Íslandi síðustu ár. Stefán segir endursegir einkenni psýkópata með svofelldum hætti: „Psýkópatar séu belgfullir af valdagirni en kunni að leyna því enda einkar snjallir að villa á sér heimildir. Þeir séu ævinlega skrefi á undan venjulegu fólki. Þeir kunni á venjulega manninn en hann Lesa meira

Obama og sjúkratryggingarnar

Obama og sjúkratryggingarnar

Eyjan
28.07.2009

  Í flestum löndum Evrópu ríkir samstaða um að það sé best fyrir samfélagið að allir njóti heilsugæslu, burtséð frá efnahag. Maður sér ekki hægri flokka sem eru á móti þessu. Ekki Sjálfstæðisflokkinn á Íslandi, og ekki Íhaldsflokkinn í Bretlandi. Hann vill verja NHS, breska heilbrigðiskerfið, sem á sínum tíma var stofnað af Verkamannaflokknum. Í Lesa meira

Bíræfnir náungar

Bíræfnir náungar

Eyjan
28.07.2009

Ég veit ekki hvað á að kalla það þegar Bjarni Ármannsson, Lárus Welding og Einar Sveinsson flýja með milljónirnar sínar úr Glitni rétt fyrir hrun. Þeir höfðu allavega upplýsingar sem aðrir viðskiptavinir bankans höfðu ekki. Þeir vissu að það var komið að leikslokum. Gátu náð út peningunum sínum í tæka tíð. Þegar almennir viðskiptavinir urðu Lesa meira

Hrollvekjandi

Hrollvekjandi

Eyjan
28.07.2009

Lára Hanna tekur saman brot af eigin orðum útrásarvíkinganna þegar þeir voru að afsaka sig á tíma hrunsins. Það er holur hljómur í orðum þeirra nú þremur ársfjórðungum síðar. Sérstaklega er annarlegt að hlýða á viðtal kúlulánaþegans Björns Inga við Sigurð Einarsson kaupþingsmógúl.

Mest lesið

Ekki missa af