Engin uppstokkun?
EyjanÞað er alþekkt aðferð í lýðræðisríkjum að stokka upp í ríkisstjórnum þegar þær lenda í vandræðum eða traust á þeim fer minnkandi. Það getur verið heppilegri kostur en að þær beinlínis fari frá. Því ráðherrasæti eru ekki lén eða tímabundin eign þeirra sem þau verma. Og eins og hefur verið bent á er þetta orð Lesa meira
Detroit: Borg sem er að hverfa
EyjanKvikmyndaleikstjórinn Julian Temple skrifar grein um Detroit, borgina þar sem eitt sinn var blómlegur bílaiðnaður og sem var fyrrum einn ríkasti staður í Bandaríkjunum. Þar hefur húsnæðisverð lækkað um 80 prósent síðustu þrjú árin, atvinnuleysi 30 prósent, 33 prósent íbúanna eru undir fátækramörkum, í borginni ríkir lögleysa, Detroit er ein mesta glæpaborg í Bandaríkjunum – Lesa meira
Guðni: Icesave og ríkisábyrgðin
EyjanGuðni Th. Jóhannesson, sagnfræðingur og höfundur bókarinnar Hrunið, skrifar grein í Frétttablaðið í dag, undir yfirskriftinni Engin ríkisábyrgð? Niðurlag hennar er svohljóðandi: — — — Samt verður að spyrja hvort það sé í raun og veru afstaða meirihluta Íslendinga að ríkið hafi ekki átt og eigi ekki að ábyrgjast innstæður í einkareknum bönkum. Stóru bankarnir Lesa meira
Reynistaðabræður
EyjanÉg sé að útvarpsleikhúsið er að auglýsa leikrit um Reynistaðabræður. Þegar ég var lítill fékk ég lánaða á bókasafninu bók um Reynistaðabræður. Þetta var í útibúi Borgarbókasafnsins í verkamannabústöðunum við Hofsvallagötu. Vildi reyndar þannig til að í rétt handan við hornið var höfundur bókarinnar, Guðlaugur Guðmundsson, með nýlenduvöru- og kjötverslun. Bókin mun hafa komið út Lesa meira
Landkönnuður Íslands, Igorssaga og Veröld sem var
EyjanÍ Kiljunni í kvöld verður fjallað um Þorvald Thoroddsen, jarðfræðinginn og landfræðinginn, sem með réttu má kallast landkönnuður Íslands. Þorvaldur ferðaðist vítt og breitt um landið á síðustu áratugum nítjándu aldar, rannsakaði, mældi og skrásetti, og var líklega merkasti vísindamaður á Íslandi á þeim tíma. Eitt höfuðverk hans er Landfræðisaga Íslands sem nú er komin Lesa meira
Að sameinast Bretlandi
EyjanChris Bastille heitir maður sem heldur úti bloggsíðu. Ég veit ekkert um hann. En í dag skrifaði hann grein um Icesave, stöðu Íslands og milliríkjadeilur. Hann leggur til að Íslandi verði boðið að gerast hluti af Stóra-Bretlandi. Segir að bæði Bretar og Íslendingar gætu hagnast á þessu, en viðurkennir um leið að það sé ólíklegt Lesa meira
Orkuverð birt
EyjanÞetta er í rauninni stórfrétt. Landsvirkjun ætlar að upplýsa orkuverð á næsta aðalfundi sínum, um miðjan næsta mánuð. Maður vonar að það verði þá gert refjalaust. Ein aðalspurningin er samt: Hvers vegna var þetta nokkurn tíma leyndarmál?
Krónan sem brennuvargur
EyjanSteingrímur J. mærir krónuna, segir hana hafa þjónað Íslendingum vel. En það er samt spurning hversu hjálpleg hún hefur reynst launþegum þessa lands.. Kjaraskerðingin sem fylgdi hruni hennar á ekki sinn líka á Íslandi. Gylfi Arnbjörnsson forseti ASÍ mótmælir Steingrími og kallar krónuna brennuvarg. „Er formaður Vinstri Grænna að hlakka yfir því að samkeppnisstaða íslenskra Lesa meira
Úr Hænuungunum eftir Braga Ólafsson
Eyjan„Þjóð sem lætur völdin í hendurnar á þjófum og glæpamönnum, hlýtur að gera ráð fyrir að einhverju verði stolið frá henni.“
Á þunnum ís
EyjanÁ vefnum Rebel Economist er löng grein um Ísland og Icesave undir fyrirsögnini On thin ice. Þar er meðal annars fjallað um innistæðutryggingakerfi Evrópusambandsins, kröfur Breta á hendur Íslendingum, ábyrgð íslenska ríkisins, ábyrgð almennings á lýðræðislega kjörnum stjórnvöldum, hin svonefndu hryðjuverkalög, hugsanlega samábyrgð Breta og hversu mikið Icesave muni i raun kosta íslenska ríkið. Greinarhöfundur Lesa meira