Vegur minn til þín, Púðurtunna í Paradís og Litli prinsinn
EyjanÍ Kiljunni í kvöld verður fjallað um nýja ljóðabók eftir Matthías Johannessen sem nefnist Vegur minn til þin. Þetta er eitthvert sterkasta kvæðasafn sem hefur komið út á Íslandi síðustu ár. Jón Óskar Sólnes segir frá nýrri bók eftir sig sem nefnist A Powderkeg in Paradise og fjallar um borgarastríðið á Sri Lanka, en Jón Lesa meira
Þór Saari: Ábyrgð þingheims
EyjanÞór Saari, þingmaður Hreyfingarinnar, flutti ræðu í þinginu í gær þar sem rætt var um skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis. Þór talaði opinskátt um ábyrgð þingmanna og ráðherra. — — — Skýrsla Rannsóknarnefndar Alþingis um bankahrunið. Ræða flutt 13. apríl 2010. Virðulegur forseti. Við ræðum hér skýrslu Rannsóknarnefndar Alþingis um bankahrunið. Því miður er það svo að Lesa meira
Fyrrverandi rússneskur gangster meðal stærstu skuldara
EyjanStærstu skuldarar íslensku bankanna eru skrautlegur félagsskapur ógæfu- og ólánsmanna. Að miklu leyti eru þetta reyndar eigendur bankanna sjálfir, en svo líka menn eins og Robert Tschenguiz og svo þessi – Alisher Usmanov. Rússneskur auðkýfingur og gangster – ef marka má það sem Wikipedia segir um hann. Í skýrslu rannsóknarnefndar kemur fram að hann sé Lesa meira
Furðusögur úr einkavæðingunni
EyjanÞví hefur verið haldið fram margsinnis á þessum síðum og í Silfri Egils í gegnum árin – allt frá tímanum að það var á Stöð 2 – að það hefði verið eintómt sjónarspil þegar þýska fjármálafyrirtækið Hauck und Aufhauser dúkkaði upp sem einn af kaupendum Búnaðarbanka. Áður hafði verið talað um að franski stórbankinn Societé Lesa meira
Pólitík á skjön við veruleika þjóðar
EyjanHvað þýðir skýrsla rannsóknarnefndar fyrir hinn pólitíska veruleika á Íslandi? Flestir sem maður hittir hrista hausinn, það virðist vera almenn niðurstaða að stjórnmálakerfið hérna sé meira og minna ónýtt. Hvað geta stjórnmálamenn gert til að endurvinna traust? Ræður sem maður heyrði á Alþingi í dag voru sumpart tómt orðagjálfur, margir töluðu í tuggum og útjöskuðum Lesa meira
Fúsk og ekki fúsk
EyjanEitt er sérlega merkilegt við skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis. Við erum vön svo miklu fúski í íslenska kerfinu að við búumst varla við öðru en fúski. Og svo þegar kemur eitthvað sem ekki er fúsk, þá verðum við glöð. Og hugsum: Svona á þetta að vera framvegis.
Kári Harðarsson: Um siðrof
EyjanHér er prýðileg hugvekja eftir Kára Harðarson, hjólreiðamann með meiru. Birtist á bloggsíðu hans: Siðrof eða „Anomie“ eins og höfundur hugtaksins kallaði það er, þegar hefðir og siðir samfélagsins brotna niður og fólk veit ekki hvernig það á að hegða sér. http://visindavefur.hi.is/svar.php?id=54215 Ég ólst upp við að Íslandi væri stranglega stjórnað. Að því leyti vorum Lesa meira
Gjaldeyrisbrask Kaupþings: Svarthol
EyjanÞað var sagt um einn gjaldeyrismiðlarann hjá Kaupþingi að þegar hann fór í mat hækkaði krónan. Þetta er reyndar ekki í rannsóknarskýrslunni, en þar er fjallað um stórkostlega aðför Kaupþings að krónunni. Tilvitnunin er í Sturlu Pálsson, forstöðumann alþjóða- og markaðssviðs Seðlabankans: „Þeir ryksuguðu gjaldeyrismarkaðinn og svo þegar þeir eru búnir að því þá hætta Lesa meira
Rassvasastarfsemi
EyjanEftir skýrslu rannsóknarnefndar er erfitt að verjast þeirri tilhugsun að allir stjórnendur bankanna með tölu verði dregnir fyrir dóm og stærstu eigendurnir hugsanlega líka – það er þó spurning með refsiábyrgð þeirra síðarnefndu samkvæmt lögum. Formaður rannsóknarnefndar vildi ekki kveða já við því hvort bankarnir hefðu verið rændir innanfrá, en ef horft er á lánveitingar Lesa meira
Dæmigert?
EyjanÞessi frétt Viðskiptablaðsins segir ansi mikið um íslensk stjórnmál eins og þau voru stunduð í aðdraganda hrunsins. Viðskiptaráðherra og þingmenn eru boðaðir á fund með bisnessgreifunum: