Ritstjóri snýr aftur eftir örstutt hlé
EyjanSagt er frá því að einn helsti arkitekt hrunsins – einn þeirra sem er ásakaður fyrir vanrækslu í skýrslu rannsóknarnefndar (fyrir utan kaflann um einkavæðinguna og hagstjórnina) – ætli að halda áfram að ritstýra Morgunblaðinu frá og með morgundeginum, eftir örstutt hlé þar sem greint var frá helstu efnisatriðum í skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis. Í gær Lesa meira
New York Times: Mestanpart hrein samviska Íslendinga
EyjanSjá frétt um gosið í NYT: Iceland, mostly clear consciences.
Kristinn: Að skaða þjóðfélagið en verja flokkinn
EyjanKristinn H. Gunnarsson skrifar pistil á heimasíðu sína undir yfirskriftinni Að skaða þjóðfélagið en verja flokkinn. Pistillinn er svona í heild sinni: — — — Það hefur eðlilega vakið athygli að þingmenn í vandræðum hafa lagt áherslu á að skaða ekki flokkinn sinn. Forgangsröðunin sker í augu þar sem gjörðir þeirra eru taldar hafa skaða Lesa meira
Meðbyr Frjálslyndra
EyjanEinn stjórnmálaskýrandi orðaði það svo: Ef þið viljið endurhlaða breska kerfið þá kjósið þið Frjálslynda demókrata. Það er stórkostlegt að sjá hvernig Nick Clegg hefur stolið senunni frá David Cameron og Gordon Brown. Og nú eru stóru flokkarnir farnir að vera áhyggjufullir. Cameron heldur því fram í dag að atkvæði greitt Clegg sé óbeinn stuðningur Lesa meira
Fagurt sólarlag vegna goss
EyjanGuardian birtir myndir af fögru sólarlagi víða um Bretland – sem sagt er að stafi af öskunni frá Eyjafjallajökli. Þessi mynd er frá Edinborg:
Best fyrir flokkinn
EyjanBaldur Kristjánsson prestur í Þorlákshöfn – og fyrrverandi stjórnmálaskýrandi á Tímanum – skrifar um kúltúrinn sem ríkir hér í flokkunum og hefur verið svo átakanlega áberandi síðustu dagana: „Gott hjá Margréti Tryggvadóttir í Silfrinu í dag að benda á flokkshugsunarháttinn. Fólk segir af sér af því að það er best fyrir flokkinn. Þetta er lærður Lesa meira
Furðuleg flokksstemming
EyjanMargrét Tryggvadóttir benti á athyglisverðan hlut í Silfrinu í dag: Nefnilega að þeir stjórnmálamenn sem eru að segja af sér (tímabundið) gera það með vísan til flokkshagsmuna. Þeir eru að gera þetta fyrir flokkinn. En hvað með almenning? spurði Margrét. Annað þessu tengt. Samfylkingin hélt fund í gær og þar flutti Jóhanna ræðu sem átti Lesa meira
Limbaugh: Refsing guðs
EyjanRush Limbaugh er einn af hinum kexrugluðu en stórhættulegu hægriöfgamönnum sem vaða uppi í bandarískum fjölmiðlum – ásamt til dæmis Glenn Beck, Ann Coulter og Bill O’Reilly. Limbaugh talaði í útvarpsþætti sínum um Ísland, eins og Magnús Sveinn Helgason nefnir á vefnum Freedom Fries. Og karlinn er ekki í vafa um að sjálfur andskotinn sé Lesa meira
Flott Spaugstofa
EyjanAð sumu leyti hefur Spaugstofan verið vanmetið fyrirbæri í íslensku þjóðlífi. Spaugstofumenn eru til dæmis aldrei tilnefndir til Edduverðlauna. Ég veit ekki hvort þeir eru að kveðja sjónvarpið, það kemur í ljós, en þáttur þeirra í kvöld var öldungis frábær. Það er makalaust að fylgjast með framleiðslu þessara þátta – því sem kallast production value Lesa meira
Flökkusaga
EyjanKári og vinur hans voru að gæða sér á snúðum með karamelluglassúr í morgun. Mamma Kára heyrði hann segja við vin sinn: „Það var einu sinni bankastjóri sem reyndi að troða hálfum snúð upp í sig í einu.“ Vinur hans: „Vá!