Thor
EyjanVið andlát manns eins og Thors Vilhjálmssonar veit maður ekki alveg hvað maður á að segja. Kannski nær maður að henda reiður á minningunum um hann og skáldskap hans og skáldskapnum í kringum hann á næstu dögum. Ég er samt ekki viss – Thor var mörg bindi. Ég sá á Facebook þessa tilvitnun í bókina Lesa meira
Ábending um ráðningar dómara
EyjanÞað er kannski ekki bara Jóhönnu og Steingrími að þakka að hér hafa verið gerðar smá úrbætur varðandi skipun dómara. Það hefur nefnilega verið vitað að ráðningaferlið hefur verið meingallað, sjálfur forsetinn hefur bent á það, og sama má finna í umsögn framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins frá því í fyrra en þar er rætt um hvort Ísland Lesa meira
Ekki alveg óbirt
EyjanEyjan tekur upp af Fésbókarsíðu Ingibjargar Sólrúnar „áður óbirt“ minnisblað um Icesavemálið. Mörgum þótti þetta samt kunnuglegt. Þetta var nefnilega í umræðunni fyrir meira en ári síðan – og má meðal annars finna minnisblaðið í frétt á Vísi frá því 21. desember 2009. En kannski er þetta alveg skiljanlegt í þeirri hringrás sem Icesave-málið er Lesa meira
Sögurnar í Land Rover, ljóð á Sigló og þýðingar á þýsku
EyjanÍ Kiljunni í kvöld förum við norður á Siglufjörð – um göngin frá Akureyri – sem einn viðmælenda okkar á Sigló sagði að væru eins og búlevarður. Við tókum upp talsvert af efni á Siglufirði, en sýnum nú fyrsta hlutann. Þar fjöllum við um ljóðasetur sem hefur verið sett á stofn í húsi sem hallar Lesa meira
Ráðherra segir af sér vegna ritþjófnaðar
EyjanÞýski varnarmálaráðherrann Karl Theodor zu Guttenberg er maður sem hefur flogið hátt í pólitík og ætlaði að fljúga hærra. Hann var talinn mögulegur arftaki Angelu Merkel sem kanslari Þýskalands. Nú hefur Guttenberg þurft að segja af sér eftir aumkunarvert svindl – og mikinn þrýsting. Það kom upp úr dúrnum að Guttenberg hafði stolið stórum hlutum Lesa meira
Erfiðara að komast upp með pólitískar dómararáðningar
EyjanMér var bent á það vegna pistils um dómara að reglum um skipan þeirra hefði verið breytt verulega í fyrra. Það er sjálfsagt að koma því á framfæri. Þetta var skýrt út fyrir mér með eftirfarandi hætti, en lögin má finna á þessari vefslóð: „Í hverju felst þessi breyting? Jú, ráðherra verður að fara að Lesa meira
Ögmundur skipar dómara
EyjanÓlafur Ragnar Grímsson forseti sagði í viðtali við mig um daginn að einn helsti gallinn á stjórnskipan Íslands væri hvernig farið væri að því að skipa dómara í Hæstarétt. Kerfið er einfaldlega þannig að dómarar hafa verið handvaldir af ráðherrum. Ráðherrarnir hafa yfirleitt verið úr Sjálfstæðisflokknum. Nú stendur til að skipa þrjá hæstaréttardómara í viðbót Lesa meira
Pínu hræsni
EyjanÞað er Hollywood sem hefur kennt heimsbyggðinni að segja fuck. Allir kunna að segja fuck og motherfucker og það er allt í boði draumaverksmiðjunnar. Ég man að maður heyrði þessi orð fyrst á áttunda áratugnum, það var einfaldlega vegna þess að farið var að nota þau í kvikmyndum sem var bannað áður. Börn fara að Lesa meira
New Statesman: Meira af því sama á Írlandi
EyjanFiachra Gibbons skrifar um írsku kosningarnar í New Statesman og segir að munurinn á flokkunum Fienna Fail og Fine Gail sé eiginlega ósýnilegur í augum útlendinga, en hann sé sá helstur að Fine Gael menn hafi ekki verið jafn góðir í spillingunni og vinahyglinni og þeir í Fianna Fail. Því hafi Fianna Fail gengið betur Lesa meira
Ensku áhrifin
EyjanEr að horfa á samklipp úr Óskarsverðlaunahátíðinni í gær. Kanarnir falla alltaf fyrir því sama. Því sem þeir telja vera ensk fínheit og fágun. Maður man eftir A Room With A View, The English Patient, Elizabeth, Shakespeare in Love, The Queen – og núna The King´s Speech. Ágætar myndir sem voru verðlaunaðar á sínum tíma, Lesa meira